Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 19
ásamt öörum sérskólum munu
jafnframt hafa myndina til afnota.
Er þetta fyrsta myndin, sem gerð
hefur veriö og veröa geröar fleiri
slíkar myndir sem tengjast fisk-
vinnslu og markaðsmálum.
Sjávarútvegsráðuneytið mun
jafnframt halda áfram kynningar-
starfsemi meó margvíslegum hætti
og þá í samstarfi viö stofnanir og
félagasamtök á hverju sviöi.
íslenska
raösmíðaverkefniö
varö norskt
Fyrir þrem árum var sett af stað
raðlsmíðaverkefni á fiskiskipum og
var meiningin aö það yröi íslenskt
iðnþróunarverkefni. Sú hefur þó
ekki orðið raunin, allavega ekki
hvað varðar tækjabúnað skipanna
því stöðvarnar sem smíða skipin,
fengu mjög hagstætt norskt lán að
því tilskildu að þær keyptu öll tæki
frá Noregi. Aö sögn forráðamanna
Vélaverkstæöis Sigurðar Svein-
björnssonar, sem sérhæft hefur sig
í smíöi vindubúnaðar, töldu þeir sig
hafa góða möguleika á vindusmíói í
skipin og unnu ötullega aö því aö
geta boðið jafngóða eöa betri vöru
en innflutta. Segjast þeir hafa
fengið staðfest aó þeirra tilboö væru
fyllilega samkeppnisfær við er-
lendu tilboðin, bæði hvað varöar
verð og gæði, en enn hefur ekki
verið gerð pöntun hjá þeim um
smíöi í skipin.
Myndbönd
frá Sjómanna-
sambandinu
Um þessar mundir er að Ijúka
gerð tveggja fyrstu myndbandanna
sem Sjómannasambandið stendur
aö og ætlar að dreifa um borð í ís-
lensk skip, í gegnum sjómannafé-
lögin. Hver spóla er eins og hálfs
tíma löng og á þeim er fjölbreytt
efni, blandað fræöslu- og skemmti-
efni, fjármagnað með auglýsingum.
MYNDBANOADREIFING
SJÓMANNASAMBANDS ÍSLANDS
UMSJÓN: MYNDB/ER
Á fyrstu spólunni er mynd um
hættur þær sem sjófarendur þurfa
að vara sig á vegna sæstrengja;
þáttur sem tekinn var upp á ráð-
stefnu Fiskiðnaóar og sjávarút-
vegsráðuneytisins um gæöamál,
auk tónlistarefnis o.fl. Á næstu
spólu spjallar Hafþór Rósmunds-
son, starfsmaður Sjómannasam-
bandsins um málefni þess, þar
verður myndin sem sjávarútvegs-
ráðuneytið lét gera um meöferð á
fiski, skemmtiþáttur með Magnúsi
og Þorgeiri sem gerður var sér-
staklega fyrir sambandið o.fl. Verið
er að gera tvo þætti um lífeyrismál
sjómanna, þætti um öryggismál og
stuttan þátt þar sem lögfræðingur
sambandsins spjallar um réttinda-
mál. Ætlunin er að gefa út spólur
einu sinni í mánuði og verða
hverju félagi sendar tvær til fjórar
spólur, sem þau síðan láta ganga
milli skipanna og endurkalla svo að
vissum tíma liðnum. Spólurnar eru
eingöngu ætlaöar til sýninga um
borð í skipum og bátum.
Bobbingar
úr gúmmísalla
Gúmmívinnslan hf. á Akureyri
hefur hafið samstarf við sænskt
fyrirtæki, JLP Product og fengið
einkaleyfi á framleiðsluvörum
þeirra. Fyrirtækið hefur þróað sér-
staka tækni viö framleiðslu á
gúmmívörum, sem felst í því aö
nýttur er gúmmísalli sem fellur til
við hjólbarðasólningu. Þessum
salla hefur hingað til verið hent, hér
á landi, svo við þessa framleiðslu-
aðferð er augljós umhverfisvernd.
Að sögn Þórarins Kristjánssonar,
eiganda Gúmmívinnslunnar hf. er
ætlunin að fá allan salla af hjól-
barðaverkstæóum á landinu, en
hann telur aó það séu um þrjú til
fjögur tonn á ári. Einnig hefur Þór-
arinn nýtt troll- og netaafganga og
blandað saman viö gúmmíið.
Bobbingar hafa ekki verið fram-
leiddir áður með þessari aðferð og
kvaðst Þórarinn vona að skip-
stjórnarmenn verói sér innan
handar, bæði við tilraunir og meö
ráðleggingar um þaö hvernig best
er að hafa bobbingana t.d. hvað
varðar lögun og þyngd. Bobbingar
frá JLP hafa verið prófaðir í togar-
anum Harðbak og gefið góða raun.
Kvaöst Þórarinn búast vió aö fyrst
verði framleiddir 65 kílóa bobbing-
ar en möguleiki er að breyta og
bæta, eftir ráóleggingum þeirra
sem veiðarnar stunda. Þórarinn
sagði að nú séu flutt inn til landsins
325 tonn af gúmmíbobbingum ár-
lega og verður framleiðsla innan-
lands því gjaldeyrissþarandi.
Gúmmívinnslan eraö koma sérfyrir
í nýju húsnæði á Rangárvöllum, á
Akureyri og setja uþþ vélar til fram-
leiðslunnar. Búist er við að fram-
leiðsla geti hafist um áramót. Sím-
inn hjá Gúmmívinnslunni er
96-26776.
VÍKINGUR
19