Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Síða 58
Á íslandi vantar peninga
Hér á landi hefur staðið til,
undanfarin ár að kanna vinnutíma
sjómanna, jafnt yfir- sem undir-
manna, en sú könnun hefur ekki
enn náð frarn að ganga. Borið er
við fjárskorti.
Það hefur verið krafa samtaka
sjómanna að þessi könnun fari
fram, en eins er með þetta og
margt annað sem varðar sjómenn,
jafnt heilsufars- og fjárhagslega,
að könnun á aðstæðum þeirra
getur ekki farið fram vegna fjár-
hagsástæðna.
Kannski rætist úr fjárhags-
vandanum nú, ef áætlanir standast
þar um. Sjávarútvegsráðherra
hefur sýnt málinu skilning svo að
von er nú til þess að fjár verði afl-
að til þess að framkvæma könn-
unina.
(Þýtt og staðfært — IS)
— Nú er ég búin að leika svo
mörg karlmannahlutverk, að
helmingur Parísarbúa heldur að
ég sé karlmaður, sagði ærið létt-
úðug leikkona í áhyggjufullum
tón við stallsystur sína, sem svar-
aði henni samstundis:
— Kærðu þig kollótta, væna
mín, hinn helmingurinn hefur
óræka sönnun fyrir hinu gagn-
stæða.
•
— Kæra frænka, ég væri fús til að
kvænast vinkonu þinni, ef hún
væri ekki svona heimsk.
— Ég skil það, svaraði frænk-
an. — Þú þarft að eiga konu, sem
hefur vit á við tvo.
Sífelldur nöldrari kvartaði yfir því
við lækni sinn, að nú gæti hann
hvorki setið né legið.
„Þá er ekki um annað að ræða,“
svaraði læknirinn, „en þér verið
að hengja yður.“
hann. Einnig hélt hann því fram
að stytting vinnutímans, þegar þar
að kæmi. yrði til þess að vinnu-
brögð myndu batna og aukast en
mikilvægast væri að heilsufarið
batnaði með auknum frítíma og
að fjölskylduböndin styrktust.
Halldorssen hélt því fram að
aukinn tækjabúnaður um borð
hefði haft íþyngjandi afleiðingará
notendur, síðustu tvö til tíu ár.
Hinar auknu framfarir hafa aukið
ábyrgð þeirra til muna og sett á þá
pressu, heilsufarslega séð.
Vinna verður að bættri og
tryggari stöðu fiskimanna og þau
verkefni verða að hafa forgang.
Þetta verkefni má atvinnugreinin
ekki forsóma. Ekki er verðugt að
samþykkja framhald þess ástands
sem nú ríkir, sagði Halldorssen að
lokum.
Eigum oftast fyrirliggjandi ýmsar stærðir af plastkössum — bökkum
— bæði til notkunar á sjó og í landi. — Einnig ýmsar stærðir af
umbúðafötum/Stömpum, fyrir matvælaiðnaðinn o.fl.
Einnig höfum við fengið nýja gerð af gólfmottum til notkunar á vinnu-
stöðum þar sem standa þarf við vinnu.
B. Sigurðsson s.f.
Nýbýlavegi 8 —
Dalbrekku megin
Kópavogi —
Sími 46216
58
VÍKINGUR