Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Page 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Page 5
Nú þegar samningar milli FFS'l og LÍÚ, eru afstaönir spyrja menn sig þeirrar spurningar hvaö hafi áunnist. Eitt og annaö fékkst, þó menn heföu gjarnan viljaö fá meira. Samningaviö- ræöur fóru fram án milligöngu sátta- semjara og tel ég að það hafi skilað sér betur, því viöræöur veröa opnari og hreinskilnari. Hvaö varöar einstaka liði samnings- ins veröur hver og einn aö dæma fyrir sig, svo og yfirmenn í heild. Samnings- staöa okkar er aö mínu mati veik og má þar um kenna þeirri fiskveiöistefnu sem núerígildi. Þegar þrír mánuöir eru liönir af árinu og menn búnir aö spá í kvótakerfiö, eru þeir eflaust misánægöir meö sinn hlut og fer þaö bæöi eftir aflamagni og afla- samsetningu, hvaö mönnum finnst. En spurningunni um hvort nægjanlegur þorskur sé fyrir hendi í sjónum, er örugglega vandsvaraö og jafnvel aldrei hægt aö svara svo óyggjandi sé, hvorki affiskifræöingum, néöörum. Ekki er hægt aö láta hjá líöa aö ræöa um öryggismál sjómanna, f Ijósi þeirra atburöa sem gerst hafa undanfariö og kemurþá upp i hugann slysiö sem varö viö Vestmannaeyjar er Hellisey VE fórst og aöeins einn maöur komst lífs af og þaö á hreint undraveröan hátt. Þaö einstæöa afrek veröur lengi í minnum haft og er án efa frækilegasta afrek og ætti aö verölauna viökomandi mann fyrir. Efsá búnaöursem vera átti um borö, samkvæmt reglugerð, þ.e. sjálfvirkur sleppibúnaöur á gúmmíbát, heföu trúlega fleiri menn bjargast. Aölögun- artími var gefinn til þess aö aöilar gætu sett upp þennan búnaö og aöeins er fariö fram á einn sjálfvirkan búnaö, en ætti aö minnsta kosti aö vera tvöfaldur. í kjölfar þess mætti athuga starfsemi Siglingamálastofnunar, hvaö varöar undanþáguveitingar, en þær eru meö eindæmum hvaö varöar öryggismál sjómanna. Ekki þarf aö undra starfs- hætti stofnunarinnar þegar í Ijós hefur komiö yfirgangssemi og valdníösla ráöherra siglingamála hér á landi, þar sem ráðherrann gefur út haffærnisskír- teini til handa skipi, án undangenginnar skoöunar og brýtur þar meö gildandi lög um skoðun skipa. Þaö er einnig vítavert af skipstjóra aö láta úr höfn án þess aö hafa haffærnisskírteini ílagi. Eitthvað viröast menn vera aö draga i land meö þyrlukaup til handa Land- helgisgæslunni, þrátt fyrir fyrri yfirlýs- ingar þar um. Þaö er von bæöi sjó- manna og landsmanna allra, aö viö getum sjálfir haft meö höndum rekstur nauösynlegra björgunartækja. Þetta ætti aö kenna mönnum aö láta af þeirri undanlátssemi sem hér hefur viögeng- ist á nær öllum sviöum, sérstaklega hvaö varöaröryggismál. Ásmundur Ásmundsson. formaöurSindra. Víkingur 5

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.