Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Blaðsíða 26
Þýtt úr Handels og
Sjofartstidende
HilmarSnorrason
... Starfsandinn var
góöurá skipunum
og samband
útgeröar og skipa
varmeö allra besta
móti. Ensmáttog
smátt fóru aö gerast
ýmsar breytingar. -
KAOS vírusinn hélt
innreiö sína...
26 Víkingur
Aðvörun - smitsjú
Þessi litla saga er skrifuð af sænskum
yfirvélstjóra sem stóö frammi fyrir
skrifborði fullu af skýrslum alveg
ráðalaus. Eru kannski einhverjir sem
kannast við sjálfa sig í þessari sögu?
— Þaö er kominn upp nýr og
mjög smitandi sjúkdómur í
skipaútgerðarbransanum. Því
miðureru sjómenn orðnirmjög
smitaðir af honum, sagði einn
vinur minn, sem er umboðs-
maður. Mig grunaöi illilega að
hann væri að tala um nýjan
kynsjúkdóm.
— Nei, það er miklu alvar-
legra en það, svaraði hann og
gaf barþjóninum merki um aö
fylla glösin. — Sjúkdómurinn
er skyldur virussjúkdómi sem
herjar á heilasellurnar og
heltekur þær. Og það sem
meira er, það eru engin ytri
einkenni sjáanleg á mönnum,
hvorki um borð né á skrifstof-
um útgerðanna. Þetta byrjaöi
allt i opinberum stofnunum,
hélt félagi minn áfram. —
Seinna fór það út i viðskiptalif-
ið. Það er fyrst nú á síðari
árum sem vírusinn náði aö
festa rætur til sjós og í öllum
öörum atvinnuvegum í nútima
þjóðfélagi. Það eru líklegast
aðeins villimennirnir sem búa
innst inni i frumskógum Afriku
sem ekki hafa smitast. Því
miður er enginn sem veit
hvernig á að hefta útbreiðslu
hans, hvað þá að lækna.
Umboðsmaðurinn sagði
þennan sjúkdóm vera þekktan
undir nafninu KAOS. Það var
sjúkdómur sem ég hafði aldrei
heyrt nefndan. KAOS er stytt-
ing á Kerfisbundinn Árangur
Og Skipulagning og þá ertu
kannski eitthvaö nær því
hvaða sjúkdómur þetta er?
Þvert á móti skildi ég lítið hvað
hann var að fara og hann sá
það líklegast á mér.
Hann kinkaði kolli og sagði:
— Allt í lagi, ég skal fara dýpra
í málið, en þá verðum við að fá
aðra umferð i glösin.
Sagan er i meira lagi undar-
leg, en er raunverulega sönn.
Eins og þú veist skipti ég við
nokkuö mörg skipafélög og
umboðsmenn. Eitt þessara fé-
laga hef ég haft sérstaklega
mikil viðskipti við, og það
alveg siðan þeir hófu siglingar
hingað. í gegnum árin hefur
skipafélagið vaxið og dafnað
vel og er nú eingöngu með ný-
tísku skipakost. í upphafi voru
skipin léleg og hef ég grun um
að áhöfnum hafi þá verið þræl-
aö út. Skipakosturinn varð
siðar af Imeiri og var að mestu I
áætlunarsiglingum. Yfirmenn
skipanna voru flestir áhuga-
samir og meðvitaðir um
ábyrgðina sem á þeim hvíldi.
Starfsandinn var góður á
skipunum og samband út-
gerðar og skipa var með allra
besta móti. En smátt og smátt
fóru að gerast ýmsar breyting-
ar. KAOS vírusinn hélt innreið
sina i skip félagsins og virðist
smitunin veraalgjör.
Allir smitaðir
Ég kynntist i dag áhöfn sem
öll var smituö, og það alvar-
lega. Eitt skipa félagsins ligg-
ur nefnilega hér í höfninni og
fór ég þvi um borð. Fyrsta
sjáanlega einkennið var við
landganginn, eða réttara sagt
þar sem hann átti að vera, þvi
hann var enginn. Það hékk
bara lóðsleiðari yfir lunning-
unaog niðurskipshliðina. Með
erfiðleikum komst ég þó um
borð. Ég sá mér til skelfingar á
leið minni upp leiðarann aö
skipið var ekki einu sinni
tryggilega bundið við bryggj-
una. Þegar ég loks komst inná
þilfarið bjóst ég við að allt væri
á ferð og flugi þar. Ég varð
alveg steinhissa. Það var ekki
lifandi sálu að sjá. Það er vist
óhætt að segja að á vel stjórn-
uðu skipi sé eðlilegt að allt sé
eins og á geðveikrahæli, strax
og búiö er að binda. Allir að
gera klárt til losunar og lest-
unar. Því var nú ekki fyrir að
fara á þessu skipi. Þarna um
borð i morgun var allt svo
hljótt, að ég varð næstum
skelkaður. Ég fór inn i yfir-
bygginguna en þar sá ég held-
ur engan, hvorki i skrifstofu
skipsins né i klefum. Ein-
manakennd var aö byrja að
sækja á mig þegar skyndilega
öll Ijós dóu út og aðvörunar-
kerfi vélarrúmsins tók aö
glymja um auða gangana. Ja,
þá fór nú eitthvað að ske.
Hurðinni á setustofu skipsins
var hrundið upp og út kom
vélstjóri hlaupandi. Áður en
hurðin féll aö stöfum heyrði ég
aðvarandi málróm berast inn-
anfrá sem sagði: „Þú hefur
sex minútur til aö redda
þessu. Mundu að kvótinn fyrir
neyðarviðgerðir er næstum
þvi uppurinn."
Vitlaust skipulag
Hið óvænta „black-out“
hafði truflað mikilvægan
skipulagsfund. Tvö kerti voru
sótt í snatri svo fundurinn gæti
haldið óhindrað áfram. Ég fór
inn. Mér tókst aö vekja á mér
athygli við skipstjórann og
baðst afsökunar á trufluninni,
en það væru ýmis atriði sem
við þyrftum að ganga frá i
sambandi við afgreiðslu
skipsins. Skipstjórinn reis upp
frá ógurlegum pappirsstafla.
— Ó já, sagði hann, þú ert vist
umboðsmaðurinn, en þú áttir
að koma um borð í gær og