Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Side 8
8
NYIR SAMNINGAR
Kjarasamningar
fiskimanna
3. apríl sl. voru undirritaðir
samningar milli FFSÍ og FÍB
fyrir yfirmenn á stórum tog-
urum og LÍÚ fyrir yfirmenn á
minni togurum og bátum. Það
er síðan á valdi hvers félags
innan FFSÍ, hvort samningur-
inn verður samþykktur.
Að sögn Guðjóns A. Kristj-
ánssonar, forseta FFSÍ, eru
menn nokkuö ánægöir með
samningana miöað viö að-
stæður, en hann vildi undir-
strika að þeir eru gerðir í
tengslum við loforð sjávarút-
vegsráðherra um aö á næsta
Alþingi verði flutt frumvarp til
laga um lífeyrisgreiðslur af
öllum tekjum sjómanna.
Helstu atriði samningsins
eru þau að kaup og aðrir
launaliðir hækka um 6% frá 1.
apríl, hjá bátamönnum en frá
upphafi fyrstu veiðiferðar i
mars, hjá stóru togurunum.
Síðan um 2% 1. júní, 3% 1.
september og 3% 1. janúar
1985, verði samningum ekki
sagt lausum með mánaðarfyr-
irvara, fyrir 1. september 1984
eða 1. janúar 1985, en um
þessi uppsagnarákvæði var
samiö, i 6. grein samningsins.
Auk þessa hækkar kaup-
trygging yfirmanna á bátum og
minni togurum i þau hlutföll að
skipstjóri, 1. stýrimaður og 1.
vélstjóri hafi 1.5 kauptrygg-
ingu háseta, II. vélstjóri og II.
stýrimaður hafi 1.25 kaup-
tryggingu háseta og III. vél-
stjóri 1.125 kauptryggingu
háseta. Hækkun þessi skal
koma til framkvæmda að hálfu
leyti 1. september nk. og að
öllu leyti 1. janúar 1985, enda
hafi samningnum ekki verið
sagt lausum samkvæmt heim-
ildarákvæöum 6. greinar.
Samið var við báða aðila um
eftirfarandi: Noti yfirmaður
sannanlega eigin bifreið eða
sima í þágu útgerðar, skal út-
gerðarmaður greiða þann
kostnað eftir nánara sam-
komulagi.
Samið var viö LIÚ um kaup á
meðan á viðgerð skips stend-
ur, utan heimahafnar, og
greiöist eftirfarandi til yfir-
manna fyrstu tiu dagana, fari
þeirmeð skipið:
Skipstjóri 1.340,-
I. stýrimaðurkr. 980.-
II. stýrimaður kr. 850.-
I. vélstjóri kr. 1.120,-
II. vélstjóri kr. 850.-
III. vélstjóri kr. 850.-
Sé skip lengur til viðgerða
en 10 daga, skal yfirmönnum
greitt tímakaup frá og með 11.
degi. Vinna umfram 8 klst. og
vinna á laugar- og helgidögum
greiðist með yfirvinnu, enda
sé skipið i nausti eöa við land.
Við báða aðila var samiö um
afleysingamenn og er sú sam-
þykkt svohljóöandi:
Sé ráðinn afleysingamaður
og hafi hann starfað i 9 mán-
uði eða lengur meö eðlilegri
fritöku á undangengnum 12
mánuðum hjá sömu útgerð,
öðlast hann öll þau réttindi
sem fastráðinn væri, enda hafi
hann full réttindi til að gegna
viðkomandi stöðu.
Við FÍB var samið um að
fella eftirfarandi inn i 6. gr.
aðalkjarasamningsins: Hafi
yfirmaður starfað í þrjá mán-
uði hjá sömu útgerð skal hann
fá greidda fridaga frá upphafi.
Einnig var samþykkt að ef
aðilar samningsins yrðu sam-
mála um breytingu á mönnum
á stórum togurum, og sam-
þykktu nýjan kjarasamning
miöað við þá breytingu, falli
þessi samningur úr gildi.
i samningnum við LÍÚ, er
ákvæði þar sem aðilar sam-
þykkja að endurskoða sér-
samninga um rækjuveiðar og
að gera heildarendurskoðun á
kjarasamningum til einföldun-
ar. Á þeirri endurskoöun að
vera lokið fyrir 15. mai 1984.
Samningarnir gilda báðir til
19. april 1985, verði þeim ekki
sagt upp fyrr, samkvæmt um-
sömdum uppsagnarákvæð-
um.
Víkingur
Nýir kjarasamn-
ingaryfirmanna-
félaga
Stýrimannafélag íslands,
Vélstjórafélag íslands, Félag
islenskra loftskeytamanna og
Félag bryta gengu hinn 20.
mars sl. frá kjarasamningi við
Vinnuveitendasamband ís-
lands f.h. kaupskipaútgerð-
anna, Vinnumálasamband
samvinnufélaga f.h. skipa-
deildar SIS og Vinnumála-
nefnd rikisins f.h. Rikisskips,
Landhelgisgæslunnar og
Sementsverksmiöjunnar.
i stórum dráttum gengur
samkomulagiö út á sömu
atriði og samningur Alþýðu-
sambandsins við Vinnuveit-
endasambandið. Þannig
hækka laun allra félagsmanna
ofangreindra stéttarfélaga um
5% þann 21. febrúar 1984.
Siðan um 2% þann 1. júni, um
3% 1. september og loks um
3%hinn 1.janúar1985.
Samningurinn gildir til 15.
apríl 1985, þó er heimilt að
segja launaliðum samnings-
ins upp þannig að þeir verði
lausir 1. sept. 1984 og 1. jan-
úar1985.
Útgerðirnar gáfu út yfirlýs-
ingu um endurmenntun til
handa yfirmönnum á skipun-
um og samþykktu að skipa
starfshóp beggja aðila til að
vinna að framgangi nám-
skeiða og frekari skipulagn-
ingu endurmenntunarinnar.
Þær breytingar urðu á út-
reikningi yfirvinnutaxta að í
stað þess að B-taxti hefur