Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Qupperneq 13
vitanefnd
þegar v/s Árvakur var tekinn
af stofnuninni, 1969.
— Hvers vegna var þaö
gert?
— Vitamálastofnunin var
stofnuö 1878 og haföi frá 1916
skip og áhöfn til að sinna þeim
störfum sem upp komu.
Ásamt þvi aö þyggja vita og
flytja vörur til vitavarða, sáu
þeir um að vitarnir sýndu rétt
Ijósmerki og aö geirar á
stefnuvitum væru réttir. Her-
móður hét vitaskipið lengst af,
en 1959 fórst Hermóður yngri
og þá voru lögð drög að öðru
skipi, Árvakri. En 1968 var far-
ið að ræða um sparnað i rikis-
kerfinu, sildin hvarf og barlóm-
ur jókst i þjóðfélaginu. Þá var
farið að tala um að samhæfa i
rikiskerfinu með hagræðing-
arsjónarmið fyrir augum. Þeim
datt þá i hug ekki vitlaus hug-
mynd, þ.e. að sameina Land-
helgisgæsluna og Vitastofn-
unina. Það þótti t.d. eðlilegra
að varðskipin, sem voru stödd
hingað og þangað um landið,
þrygðust við ef slökknaði á
vita, hreinsuðu þá ef þeir sót-
uðu sig og jafnvel gerðu við
þá í stað þess að senda vita-
skipið sem gat verið statt i allt
öðrum landshluta þá stundina.
Það hafði reyndar tiðkast áður
að varðskipin sinntu þessu og
eins þjónustu við vitaverði á
afskekktum stöðum og þótti
ekkert nema sjálfsagt.
Hálfkaraö verk
En það var með þessa
framkvæmd, eins og svo
margt sem stjórnmálamönn-
um dettur i hug. Þeir stigu
aldrei skrefið til fulls. Útkoman
varð þvi sú að skipið og áhöfn-
in voru færð undir stjórn Land-
helgisgæslunnar, en allt kerfið
varð eftir, verkstæðið og allt
starfsfólk stofnunarinnar.
Útkoman varð þvi miklu verri
eftir en áður. Fyrst í stað fékk
Landhelgisgæslan aðeins
fjárveitingu með Árvakri, sem
dugði þó hvergi nærri, miðað
við það fjölþætta starf sem
henni var fengið i hendur og
gufaði siðan upp i skilnings-
leysi stjórnvalda og verð-
bólgu. Smátt og smátt mynd-
aðist svo togstreita milli stofn-
ananna tveggja, sem þar á
ofan heyrðu undir sitt hvort
ráðuneytið, Gæslan undir
dómsmála- en Vitastofnun
undir samgönguráðuneytið.
Á árunum 1979 og -80 voru
... Þeim dattþá í
hug ekki vitlaus
hugmyndþ.e. að
sameina Land-
helgisgæsluna og
Vitamálastofnunina.