Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Síða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Síða 14
... Reyndarvoruá árunum 1970 — 1980 tekin uppýmis nútímaleg vinnubrögð t.d. voru þyrlurnotaðartil flutninga að vitunum og í steypuvinnu ef þurfti að byggja eða endurreisa vita... 14 Víkingur Segjum okkur... Þyrla Landhelgisgæslunnar við steypuvinnu á Hlöðuvita sem fór er að endurreisa þann vita, segir Höskuldur. þessi mál öll komin í hnút og smátt og smátt dró úr allri þjónustu við vitana. Reyndar voru á árunum 1970—1980 tekin upp ýmis nútimaleg vinnubrögö, t.d. voru þyrlur notaðar til flutninga að vitun- um og i steypuvinnu ef þurfti að byggja eða endurreisa vita eða vitamannvirki. Hylkin, sem áður voru dregin yfir þúfur, klappir og klungur, voru nú flutt meö þyrlum svo vinnan varö mun auðveldari og fljót- virkari. En þetta kostaði auð- vitað peninga og með hjálp veröbólgunnar minnkuðu fjár- veitingar sem Gæslan fékk til þessara mála eins og fyrr seg- ir, svo farið var að ganga inn á rekstur hennar sjálfrar að áliti stjórnarhennar. Fulltrúar FFSÍ hóta úr- sögn úr nefndinni Þegar veriö var að semja nýju lögin var kosin nefnd inn- an FFSI sem samdi tillögur að róttækum breytingum á þess- um málum. Okkur fannst t.d. óæskilegt að um stjórn vita- mála sæju menn sem engin tengsl hefðu við sjó og gerðu sér ekki nógu skýra grein fyrir á hverju kerfið byggist raun- verulega. Ég hugsa að það sé einsdæmi i heiminum að ekki sé siglingafróður maður starf- andi viö slika stofnun. Sjó- menn verða að geta treyst á það öryggiskerfi sem vitar og önnur leiðamerki eru. Viti sem sýnir vitlaust merki eða rangt Ijóshorn, getur t.d. leitt af sér stórslys. Þegar við skiluðum áliti um nýskipan mála, lögðum við að þingmönnum að ganga skrefið til fulls, láta Landhelgisgæsl- una vera ábyrga fyrir þessum málum og sjá um vitamálin. Þar eru sérfróðir menn til að taka þessa vita út, og einnig í óveðri sl. vetur. Nauðsynlegt hefði verið hægt að flytja starfsmenn Vitastofnunar undir stjórn Landhelgisgæsl- unnar sem hefur tæki til að framkvæma þessi verkefni. Þannig hefði verið hægt að fá meiri hagræðingu i hlutina og sparnaö. En þeir hlustuðu ekki á þessa tillögu okkar, allavega létu þeir ekki verða af þessu en komu i staðinn með þessa vitanefnd. I henni eiga sæti fulltrúi FFSÍ, Sjómannasam- bandsins, LÍÚ, Félags botn- vörpuskipaeigenda, Samtaka farmflytjenda og formaður sem skipaður er af sam- gönguráöherra. Þvi starfi hef- ur Páll Zóphaníasson gegnt frá upphafi. Nefndin á að koma saman a.m.k. ársfjórð- ungslega. Fyrir þrábeiðni okkar var einnig komið inn ákvæðinu um siglingafróða manninn, sem á að sjá um eftirlit með vitunum og viðhald við þá. Hann á

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.