Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Page 16
Brunaæfing hjá Bylgjunni 16 Víkingur Guðmundur Helgason, slökkvistjóri á ísafirði útskýrir slökkvitæki fyrir áhöfn Dagrúnar, við hlið hans er Viðar Axelsson vélstjóri, Siguröur Ringsted háseti og Hávarður Olgeirsson skip- stjóri, klórar sér í kollinum. Skipstjóra- og stýrimanna- félagið Bylgjan á isafirði hefur undanfarið gengist fyrir eld- varnanámskeiðum i samvinnu við slökkviliðsstjórann á isa- firöi. Á námskeiöunum er kennd meðferð slökkvitækja, reykköfun og eldvarnakerfi skipa prófuð. Áætlaö er að halda slík námskeið um borð i öllum skipum i Vestfiröinga- fjórðungi. Að sögn Guðmundar Kristjánssonar, formanns Bylgjunnar, hafa námskeiðin tekist mjög vel og eru allir aðil- ar jákvæðir og áhugasamir. Fyrsta námskeiðið var haldið i Bolungarvík með áhöfnum skipanna Dagrúnar og Heið- rúnar og stóð útgerð skipsins, Einar Guðfinnsson hf. straum af kostnaði viö æfinguna. Guðmundur sagöi að mikil þörf væri fyrir slik námskeið, bæði fyrir áhöfnina til að læra rétt viðbrögð ef eld ber að höndum og eins til að athuga hvort brunavarnakerfið sé í lagi. T.d. kom i Ijós i Dagrúnu, sem er níu ára gamalt skip, að slöngurnar voru orðnar fúnar í sjómannastofunni í Bolungarvík var haldinn fyrirlestur um meðferð slökkvitækja. í fremstu röð sitja Aðalsteinn Kristjáns- son, slökkvistjóri, Guömundur Kristjánsson, stýrimaður á Feng og formaður Bylgjunnar, Hávarður Olgeirsson, Hlíðar Kjartans- son, kokkur og Jón Eggert Sigurgeirsson, skipstjóri á Heiðrúnu. Ljósm. G. Halls. og láku, en þær höfðu aldrei verið notaðar. Þessu verður strax kippt í lag og áhöfnin þvi öruggari á eftir. Þeir Bylgjumenn hafa i hyggju að standa fyrir sams konar námskeiði i slysahjálp þegar eldvarnanámskeiðun- um er lokið. Mættu önnur félög taka þá til fyrirmyndar, því þó allir séu sammála um nauösyn alls kyns björgunaræfinga, virðist ekki á hreinu hver á að hafa frumkvæði að fram- kvæmd þeirra.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.