Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Side 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Side 29
Segulbandsháski til sjós Stefán Arnþórsson heitir maöur búsettur á Dalvík. Hann er einn af þessum görpum sem stundað hafa sjómennsku frá blautu barnsbeini. Á siöastiiðnum 40 árum hefur hann varla komiö í land til annars en að máta sparifötin og kannski að draga tappa úr flösku ef vel viðrar. Ósjaldan hafði Stebbi sagt mér frá ýmsu fróölegu sem á daga hans hafði drifið. Nú var ætlun mín að fá hann til að trúa segulbandinu fyrir einhverju skemmtilegu. En eins og svo oft áður þegar ég hef ætlað mér að taka viötöl við fólk sem ég veit að lumar bæði á skemmtilegum frásagnarhæfileika og fróöleik, þá varð Stebbi feiminn við segulbandið og lokaðist inni í skel sinni þegar hann sá þetta skaðræðis tól. Engu að síður ætla ég að birta þetta spjall okkar sem smá sýnishorn um þann háska sem hægt er að lenda i þegar átt er viðtal við menn sem maður veit að eru marg- fróðir, en þegja þunnu hljóði þegar eitthvaö á að hafa eftir þeim á prenti. Ég set nýja spólu í segul- bandið og lalla inn i klefa til Stebba. Það er komið fram yfir miðnætti. Væntanlegt fórnarlamb mitt liggur uppi i koju og les i Sjómannablað- inu Vikingi. Hér er greinilega ekki búist við neinni árás. Ég fæ mér sæti, kveiki i pipu og legg segulbandið við koju- stokkinn. — Með hvern andskotann ertu þarna drengur? segir Stebbi og horfir á segulband- ið, um leið og hann leggur blaðið ofan á bringu sér. — Þetta er nú bara segul- band, svara ég eins og ekkert sé sjálfsagðara en ég gangi um með slíkt'tæki á frivakt- inni. Vertu alveg rólegur, það bitur ekki. Ég ætla að fá að rabba svolitið við þig. — Mig? Rabba við mig? Um hvað? — Bara um daginn og veg- inn . . Um togaraútgerð og þess háttar. Ég fann það á mér, aö ég varð aö fara að öllu með gát. Segulbandshræðslan leyndi sér ekki i augunum á Stebba. „Ætlarðu svo að kóróna þetta heppnaðamynd?“ — Ég get ekki frætt þig um neitt, svarar Stebbi og ekur sér í kojunni. Hvað ætlarðu að gera með þetta? Setja það í bók eða hvað ... ertu búinn að kveikja á bandinu? Ég kinka kolli. — Ég er aö hugsa um að taka við þig stutt viðtal og senda það i Vikinginn. - Ha? — Já, i sjómannablaöið okkar, bæti ég við og bendi á blaðið sem liggur lokað ofan á sænginni. — Ertu snarvitlaus dreng- ur... ég get ekkert sagt. — O, ég veit nú betur. Þú þarft ekki að halda að þetta með því að taka af mér mis- Ljósm. G.A. þurfi að vera háfleygt þótt þaó eigi að koma í einhverju blaði. Þetta á bara að vera örstutt spjall og þú hagar þér nákvæmlega eins og þú sitjir frammi i borösal og sért að Ijúga einhverju að mér. Stebbi hristir höfuóið. Ég læt mig ekki og byrja nú viðtalið. — Þar sem þú ert einn af siðustu móhíkönunum og ert búinn að vera svona lengi á togurum þá... — Svona hættu þessu ... ég get ekkert... hvað ætli ég geti svo sem ha? Slökktu á þessu! — Nei, nei, svara ég að Viötal: Guðlaugur Arason ... Þar sem þú ert einn afsíðustu móhíkönunum og ert búinn að vera svo lengiá togurumþá... Víkingur 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.