Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Síða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1984, Síða 46
... Skipiö brotnaöi fljótlega í tvennt, þegarísinn lagöist aö. Afturhlutinn barst fleiri faöma frá. Viö komum boöum landveg til Seyöis- fjaröar eftir línuveiöaranum „Catch Me“... ... Kom þáíljósaö viö vorum á 69. gráöu n.br. og skammt frá Jan Mayen. Skipiö var þá mjög yfirísaö og líktist smá borgarís. 46 Víkingur Siglingar... landi og suður. Það var slæm vetrarferð með opnar lestar. Voriö 1888 vorum við i Leith og lestuðum til íslands. Bróðir minn var þar og keypti gufu- skipið „Catch Hoe“, sem var fiskiskip. Ég fór sem skipstjóri um borð í „Catch Hoe“ en Otto tók við „Miaca". og tók „Catch Hoe“ á slef. Þegar út á Atlantshaf kom hrepptum við óveður og urðum að sleppa dráttartauginni. Við fylgdumst að smátima en urðum svo viðskila. Um nóttina stöðvað- ist vélin skyndilega. Við höfð- um næstum rifiö vélina til grunna áður en við fundum bil- unina. Leki kom að skipinu en við náðum til Hjaltlandseyja eftir sögulega ferð og fengum gert við skipið. Við héldum siðan ferðinni áfram og gekk aö óskum. „Miaca" komst til Beru- fjarðar við illan leik, yfirisuð og lá við að hvolfa. Ég fór aftur um borð i „Miaca“ sem skipstjóri og fór til Leith. Þaöan fór ég til Stavanger þar sem teknir voru farþegar og farmur til Islands. Þegar við nálguðumst landið komum við i hafis, en kom- umst þó til Fáskrúðsfjarðar og þyrjuðum að losa farminn, þar sem ekki leit út fyrir að við kæmumst norðar. En þar sem vindaði aö sunnan og isinn tók að reka út fjörðinn, lestuðum við vörurnar aftur og fórum til Seyðisfjarðar. Þegar komiö var á móts við Seyðisfjörö gekk í hríðarveður og þegar þirti upp vorum við umluktir is. Leki kom á skipið í afturlestinni. Við reyndum að komast aö landi til þess að þjarga okkur en sjór var svo mikill að viö treystum okkur ekki að komast i land á ströndinni. Viö vorum þá á móts við Gerpi. Þaðan sáum viö nú auðan sjó. Við keyröum hæga ferð i gegnum ishröngl en þá kom leki á stórlestina, sem fylltist á stuttum tima. Við settum skipið á land i Vöðla- vik, fyrir norðan Eskifjörð. Skipið þrotnaði fljótlega í tvennt, þegar ísinn lagðist að. Afturhlutinn barst fleiri faðma frá. Við komum boðum land- veg til Seyöisfjarðar eftir linu- veiðaranum „Catch Me“. Hann kom nokkrum dögum siðar. Otto tók svo mannskaþ- inn af „Miaca" og fór til Leith og lestaöi kol og aðrar vörurtil islands. i framhluta „Miaca“ sem lá á grunni var farmurinn að mestu kornvara og bjarg- aðist nokkurn veginn allur. Otto hafði keyþt flakiö á uþþ- boði á strandstaö. Kornvaran var óskemmd og var seld fólki i nágrannasveitum á átta krónur sekkinn og þótti ódýrt. Sem þakklætisvott færði Jónas á Svinaskála mér gullhring að gjöf frá fólkinu i Skriðdal. ísinn var áfram við ströndina og var sums staðar alil aö tíu mílur til hafs. Sunnudagsmorgun um það leyti sem við væntum „Catch Me“ aftur frá Leith, gekk ég á „Gerpi“ ásamt Þorsteini Jónssyni og Pálma Pálmasyni frá Noröfiröi að skyggnast um eftir skipinu. Við sáum reyk út viö sjóndeildarhring og töldum vist að það væri „Catch me“. Við snerum við og tókum litinn og léttan færeyskan róðrarbát og bárum hann yfir isinn til Seleyjar, um tvær danskar milur. Þegar þangað var komið var „Catch me“ skammt frá eynni. En þeir uröu okkar ekki varir þótt viö veifuðum með frakka á ári. Skipið fór hjá i átt að Vattarnesi. Við fylgdum eft- ir á ísnum og komumst um borð í „Catch Me“ á mánu- dagsmorgun við Skrúöinn. Skipið var þá fast i isnum en náði siðar inn til Fáskrúös- fjarðar. Heimamenn sögðu að ekki hefði áður verið gengiö á is út i Seley. Eftir að hafa strandað „Miaca“ fór ég á linuveiðar- ann „Catch Me“. til þorsk- veiða. Við öfluðum beitusildar i reknet á nóttunni. Mun þetta vera fyrsta reknetaveiði gufu- skips við ísland. Við höfðum fjóra færeyska báta með tveggja manna áhöfn og þús- und króka á bát. Bátshafnirnar voru Íslendingar, Færeyingar og tveir Norðmenn af skipinu. í desember kom Otto Wathne með gufuskipið „Waagen" til Stavanger eftir búnaði til björgunar á stóru ensku gufuskipi, sem strand- að hafði á Sauðárkróki. Ég hafði komið til Noregs í nóv- ember en fór með bróður min- um til Islands. Ferðin var ævintýraleg. Við hrepptum storm og regnveður. Þegarvið höfðum siglt hina útmældu vegalengd og áttum að vera við Dalatanga eftir útreikningi skipstjóra var hvergi land að sjá. Var þá stefna sett i vestur. Þar sem við hlutum að vera komnir nógu norðarlega. Við sigldum þrjár vaktir með sjö milna ferð en kenndum ekki lands. Var þá talið að við vær- um fyrir sunnan land og siglt i norður en allt kom fyrir ekki. Eina nóttina heiðaði til svo við náðum breiddinni með hjálþ Pólstjörnunnar. Kom þá i Ijós að við vorum á 69. gráðu n.br. og skammt frá Jan Mayen. Skipið var þá mjög yfirisað og liktist smá borgarís með ís fleiri faðma út fá siðunum. Viö tókum svo land við Melrakka- sléttu og fórum i var við Langanes og lögðumst við akkeri og lágum af okkur suð- vestan storm. Daginn eftir gekk veðrið niður og við náð- um til Seyðisfjarðar. Þar héld- um við jólin og fórum siðan til Sauöárkróks. „Lady Bertha" haföi strand- að á sandbotni. Við hófum dælingu með öllum tiltækum dælum og daginn eftir var skipið lens. Ég var i landi ásamt öllum Seyðfirðingunum

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.