Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1990, Page 32
Hilmar
Snorrason
skipstjóri
32 VÍKINGUR
Utan up licimi
Það var glaða
sólskin og 35 stiga
hiti þegar ég lagði af
stað frá hóteli mínu í
Limassol á Kýpur
snemma morguns, í
fyrrasumar, og hélt
áleiðis til þjálfunar-
skóla þýska útgerð-
arfyrirtækisins Han-
seatic.
Ég haföi lesið grein í ensku
blaði um þennan skóla og
þegar ég var kominn í sólina
suður á Kýpur ákvað ég að
reyna að fá að skoða hann. Ég
hafði símasamband við skóla-
stjórann Capt. Uwe E. Zellmer,
sem kvað mig velkominn og
mæltum við okkur mót í skólan-
um. Þjálfunarskólinn er á af-
girtu svæði við gömlu höfnina í
Limassol og hefur hann til um-
ráða um þriggja hektara svæði
með um 200 metra langri
strandlengju. Þegar þangað
kom var okkur, mér og fjöl-
skyldu minni, þoðiðtil skrifstofu
Zellmers sem tók þar höfðing-
lega á móti okkur. Ég fékk þá
tilfinningu að ég væri kominn
inn í litla herstöð líkt og sjá má í
kvikmyndum Hollywood
manna.
Uwe Zellmer er einstaklega
viðkunnanlegur maður og hafði
gaman af að segja frá skólan-
umsem hann hefurstjórnaðfrá
upþhafi og á sýnilega hug hans
allan. Hann hóf afskipti af þjálf-
un skipshafna frá Asíu og
Evrópu árið 1976 en hafði áður
verið yfirmaður á þýskum
kaupskipum og síðustu fimm
árin til sjós sem skipstjóri, með-
al annars á 500 þúsund tonna
olíuskipi.
Aðdragandi að stofnun skól-
ans var sá að Hanseatic taldi
Asíu-sjómenn sem komu til
starfa á skipum félagsins ekki
vera nægjanlega vel þjálfaða til
starfa sinna og að með slíkum
skóla mætti einnig setja ákveð-
inn staðal á áhafnir skipafé-
lagsins. Aðspurður taldi Zellm-
er sjómenn frá Filippseyjum
ekki vera eins hæfa sjómenn
og Evrópubúa og því væri mikil
þörf fyrir skólann. Hanseatic
hafði í fyrstu hug á að hafa skól-
ann í Þýskalandi en ekki fékkst
stuðningur frá stjórnvöldum til
þess. Ríkisstjórn Kýpur var
hinsvegar tilbúin að láta land af
hendi og veitti þeim stuðning
við hugmyndina. Skólinn var
formlega stofnaður árið 1982
en það var svo í apríl 1984 sem
kennsla hófst. Síðan hafa yfir
800 nemendur útskrifast, sem
flestir fara til starfa á skipum
undir útgerðarstjórn Hanseat-
ic, en einnig hefur skólinn í
seinni tíð þjálfað áhafnir ann-
arra skipafélaga auk sjómanna
frá Kýpur. Hanseatic tryggir
síðan nemendum fimm ára
ráðningarsamning.
Hanseatic Shipping Comp-
any Ldt. var stofnað árið 1972
til að annast útgerðarstjórnun
og um síðustu áramót voru 164
skip, samtals um 2,9 milljón
burðartonn að stærð, meö
DAGSTUND
ÁKÝPUR