Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Side 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Side 4
Breyttar aðstæður Um þessar mundir eru síðustu fulltrúar varnarliðsins að hverfa héðan af landi brott. Brottflutningurinn hefur sjálfkrafa í för með sér nauðsyn á eflingu og auknum umsvifum Landhelgisgæslu íslands. Fyrir liggur að LHG er ætlað að yfirtaka ýmsa þá þætti sem varnar- Iiðið hefur sinnt til þessa að undanskildum þeim sem beinlínis snúa að vörnum landsins. Merkja má af fréttum að eftirlit með flugumferð í lofthelgi íslands sé í lausu lofti um þessar mundir og ekki fyrirliggj- andi með hvaða hætti verði brugðist við því. Björgunarþátturinn, sem áður var hjá hernum, lendir að sjálfsögðu að fullum þunga á Gæslunni og gerðar hafa verið ráðstafanir til að efla þyrluflotann með tilheyrandi aukningu réttindamanna bæði hvað varðar flugmenn og skipstjórnarmenn. Draga má þá rökréttu ályktun af þessum nýju aðstæðum að til framtíðar komi verkefni gæslunnar til með að aukast og hlutverk hennar að verða mun umfangsmeira en verið hefur. Þessi breyting kallar á aukinn mannafla sérþjálfaðra starfsmanna með þá menntun og réttindi sem til þarf. Þá erum við komnir að þvf sem segja má að sé stóra málið í þessu samhengi. Það er að það sleifarlag sem í gangi hefur verið af hálfu íslenskra stjórnvalda hvað varðar framtíð siglinga og þá um leið framtíð siglingafróðra manna til að stýra skipum sem um ófyrirséða framtíð koma til með að sjá okkur fyrir öllum helstu aðföngum erlendis frá. Nú eru mál í þeim dapurlega farvegi að það hlýtur að reynast þrautin þyngri fyrir menntamálaráðherra að réttlæta fyrir fjárveitingavaldinu þá stöðu, að ríkið beri kostnað af menntun nem- enda þriðja stigs skipstjórnarnáms þar sem ekkert íslenskt farskip er lengur til. Þeir sem um þessar mundir starfa hjá þeim skipafélögum sem einu sinni voru íslensk en eru nú færeysk, njóta ekki lengur sjálfsagðra borgaralegra réttinda í sínu heimalandi ( s.s. fæðingaror- lofs og fl.), enda málum þannig komið í dag að menn hafa engan kost annan en að greiða skatta til færeyska ríkisins. Ástæða þess að þetta er hér dregið fram er að þriðja stigið ( far- mannaprófið) er í raun forsenda fyrir fjórða stiginu ( Varðskipadeild) eða lordinum sem svo er nefndur. Þar sem stjórnvöld hafa af einstakri skammsýni komið málum í þann farveg að ekki er nokkur einasti grundvöllur, hvað þá skynsemi fyrir menn, sem á annað borð vilja halda í almenn mannréttindi að afla sér farmannaprófs, þá sé ég ekki annað en að óbreyttu verði tiltölulega fljótlega komin upp sú staða að engir Islendingar verði til staðar, sem hafi þau réttindi og þá menntun sem til þarf til að gegna æðstu stöðum hjá Landhelgisgæslu íslands. Vonandi líður ekki á löngu þar til stjórnvöld vakna af Þyrnirósar- svefninum og grípi til þeirra meðala sem duga til þess að við þurfum ekki sem þjóð að skammast okkar heimatilbúið neyðarástand sem til er komið vegna skammsýni misviturra stjórnmálamanna. Að lokum vil ég óska Landhelgisgæslunni til hamingju með 80 ára afmælið. Árni Bjarnason Otgefandi: Völuspá, útgáfa, i samvinnu \ iö Farmanna og fiskimannasamband íslands. Afgrciðsla og áskrift: 462-251 5/ nctfang, jonhjalta@hoimail.com Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 462-2515, neifang; jonhjalta@hotmail.com Byggðavegi 101B, 600 Akurcyri. Auglysingastjóri: Sigrún Gissurardóttir, sími 587-4647. Rilnefnd: Arni Bjarnason, Hilmar Snorrason og Jón Hjaltason. Forseti FFSÍ: Árni Bjamason. Prcntvinnsla: Gutenberg. Aðildarfclög FFSÍ: Fclag skipstjomarmanna, Félag íslcnskra loftskcytamanna, Félag bryta, Skipstjöra- og stýrimannafélógin Vcrðandi, Vestmannaeyjum og Vísir, Sudurnesjum. Sjómannablaðið Vikingur kemur út fjórum stnnum á ári og cr dreift ti! allra fclagsmanna FFSÍ. ( Blaðið kcmur ut fjórum sinnum á ári. I Forslðumyndin: Síðasta áhöfn Óðins. Aftari röð.frá vinstri: Heimir Týr Svavarsson, smyrjari, Haukur D. Grimsson, smyrjari, Jón Árni Árnason, háseti, Gunnar Páll Baldursson, háseti, Haukur Haraldsson, bátsmaður, Jóhann E. Ferdinandsson, háseti, Hreinn Vídalín, háscti, Baldvin K. Kristjánsson, hdseti, Halldóra M. Lúðvtksdóttir, viðvaningur, og Bent B. Jörgensen, viðvaningur. Fremri röð frá vinstri; Jón Kr. Friðgeirsson, bryti, Hákon Örn Halldórsson, 2. vélstjóri, Hilmar Sigurðsson, 1. vélstjóri, Rúnar Jónsson, yfirvélstjóri, Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra, Pálmi Jónsson, yfirstýrimaður, Sigurður ó. Óskarsson, 2. stýrimaður, og Viggó M. Sigurðsson 3. stýrimaður. Mynd: Jón Kr. Friðgeirsson. yfirlit Sjómenn og aðrir lesendur Vikings Sendið okkur línu um efni blaðsins, gagnrýni eða hrós, tillögur um efnis- flætti og hugmyndir um viðtöl við áhuga- verða sjómenn, jafnt farmenn sem hina er draga fisk úr sjó. Hjálpið okkur að halda úti þættinum; Raddir af sjónum. Netjið á, jonhjalta@hotmail.com 6 Jón Þ. Þór fræðir okkur um upphaf íslenskrar landhelgisgæslu. 10 11 12 14 17 18 20 22 25 26 28 32 34 36 38 40 Ljósmyndakeppni sjómanna 2006, verið með! Gámaskip framtíðarinnar. Landhelgisgæsla (slands 80 ára, afmælisrit. Hálfdan Henrysson; Hentu skotunum í sjóinn! Áhöfnin á Þinganesi SF fær viðurkenningu Landsbjargar. Hilmar Snorrason finnur fleiri íslensk skip í Namibíu. Fyrir hvað stendur DAS? Sigurður Ágúst svarar þeirri spurningu. Elías S. Sveinbjörnsson hætt kominn á Tý. Þórir Haraldsson segir af bókinni, (slenskum fiskum. Stýrimaðurinn Jón Páll Ásgeirsson: Á Baldri í þorskastríði. Ingimundur Valgeirsson er á málfundum um öryggismál sjómanna. Óðinn kveður — myndaopna. Guðjón Jónsson, flugstjóri hjá Gæslunni: Plötuðum Bretann! Fjöltækniskóli Islands - skóli í þróun. Hilmar Snorrason siglir um netið. Guðjón Ármann Einarsson: Þrír dregnir í einu. 42 Hilmar Snorrason dregur að sér efni utan úr heimi. 45 Frívaktin í boði Gunda sem finnst ritstjórinn svolítið daufur. 46 47 50 50 Að veiða menn undir borðið: Ragnar Hólm glímir við hégómagirndina. Krossgátan. Lausn á síðustu krossgátu. Raddir af sjónum.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.