Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Qupperneq 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2006, Qupperneq 42
ÉÚtan úr heimi Stórflutningur Hollenska þungaflutningafyrirtækið Dockwise hefur nýlega fengið stóran og feitan samning við Rússa. Um er að ræða flutning á þremur kjarnorkuknúnum kaf- bátum af gerðunum Victor og November en Victor kafbátarnir eru 92 metrar á lengd en hinn síðarnefndi 107 metra langur. Pótt hér sé á ferðinni flutningur á síðustu sjómílum þessa kafbáta sem eru á leið í brotajárn þá fara Hollendingarnir 1 flotafylgd með þá til áfangastaðar. Kafbátarnir verða fluttir frá Murmansk til Severodcinsk og Polyarny við Hvítahaf þar sem niðurrifið fer fram. Fá Rússar styrk frá Vesturlöndum til þessa verkefnis sem er liður í enn stærri áætlun um eyð- ingu kjarnorkuknúinna skipa. Tilgangur flotafylgdarinnar er að minnka áhættuna á árekstrum við önnur skip meðan á flutningum stendur en ekki ótti við að einhverjir vilji komast yfir skipin sem eru talin ónýt með öllu. Erfiðleikar Bílaskipið Cogar Ace varð fyrir þvi fyrir skömmu að missa stöðugleika og leggjast á hliðina i orðsins fyllstu merkingu. Var skipið, sem er 32 þúsund tonn að stærð, statt í Kyrrahafinu um 230 sjómílur suður af Aljútaeyjum. Ekki er ljóst af hvaða sökum þetta gerðist þegar þetta er skrifað en sem betur fer tókst að bjarga allri áhöfn- inni. Tveimur vikum eftir óhappið hafði tekist að rétta skipið aftur við og er búist við að dráttur á því til hafnar á vesturströnd Bandaríkjanna hefjist einhvem næstu daga. Um borð í skipinu em 5000 bílar af Mazda gerð og má gera ráð fyrir að þeir séu ekki Bílaskipið Cogar Ace d hliðinni. seljanlcgir eftir veltuna. Enginn af skipverj- um skaðaðist við atvikið en einn björgunar- maður lést við störf sín um borð. Hún skal rifin Þrátt fyrir kröftug mótmæli Greenpeace samtakanna gegn því að skemmtiferða- skipið Norway verði rifið á Indlandi er ljóst að þeim verður ekki ágengt í þeim efnum. Eins og áður hefur komið fram á þessum síðum þá hefur skipið verið í hálf- gerðum feluleik í nokkurn tíma eða alh frá því að það var dregið úr höfn í Evrópu til leynilegs áfangastaðar. Sprenging hafði orðið í vélarúmi skipsins og miklar „spekulasjónir“ vora um hvort eig- endur þess myndu gera við það eða rífa. Meðan skipið hékk aftan í dráttar- bátum á siglingu fyrir Góðrarvonarhöfða var skipl um nafn á því og það nefnt Blue Lady enda skipið blámálað á skrokkinn. Má segja að það nafn sé skipinu lil heiðurs gefið síð- ustu daga þess. Fljótlega varð ljóst eftir nafnaskiptin að stefnan var sett á Indland til brotajárnskaupmanna og hófust þá kröftug mótmæli Greenpeace manna. Talið er að í skipinu séu um 1000 tonn af skaðlegum úrgangi, mest asbest. Skortur á skipum í Kína eru menn farnir að hafa af því verulegar áhyggjur að kínverskar útgerðir hafi ekki yfir að ráða nægjanlega stórum flota olíuflutningaskipa til að geta annað stöðugt vaxandi olíuinnflulningi til lands- ins. Núverandi tankskipafloli í eigu eða undir stjórn Kínverja getur aðeins annað um 43% þess magns sem flutt er til lands- ins en í raun þá kentur 90% allrar inn- fluttrar olíu til Kína með erlendum tank- skipum. Kínversk stjórnvöld hafa því hvatt kínverskar tankskipaútgerðir til að auka við flota sinn þannig að innflutning- ur allrar olíu til landsins sé með kínversk- um skipum. Er þetta ekki ágætis stefna sem íslensk stjórnvöld gætu lært af? Fullir Bretar Þeir eiga eflaust ekki eftir að sigla oftar milli Holyhead og Dublin Bretarnir sem fengu sér einum of ntikið neðan í því á þessari leið. Hópurinn, hafði tekið sér far Nýjasti gámaskiparísinn Emma Mærsk. 42 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.