Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 50
44
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
stöðum. Svo nær útbreiðsla þess vestur um Stóra-Vatnsskarð. Al-
gengt er það í Svartárdal, allt fram að Fossum, — sömuleiðis í
Blöndudal og öllum Langadal, allt út undir Blönduós. Finnst líka
í Gautsdal, Þverárdal og að Tungunesi. Aðalútbreiðslusvæði blá-
hveitisins er auðsjáanlega Skagafjörður og austanverð A.-Húna-
vatnssýsla. Hlýtur það að vera allgamalt í landinu.
Ingólfur Davíðsson.
Leiðrétting.
1 grein minni „Nýjungar um íslenzk skeldýr" í 4. h. Náttúrufræð-
ingsins 1960 misritaðist nafn finnanda sandskeljarinnar í Grafar-
vogi; hann heitir Baldvin Einarsson (sonur Einars Pálssonar verk-
fræðings). Bið ég velvirðingar á mistökum þessum.
Ingimar Óskarsson.
Guðmundur Kjartansson:
Skýrsla um Hið íslenzka náttúrufræðifélag 1960
Félagsmenn
Árið 1960 lézt einn ævifélagi, Edvald F. Möller, kaupmaður á Akureyri, og
14 ársfélagar gengu úr félaginu. Hafa því alls liorfið úr því 15 manns. í félagið
gengu 57 manns, og hefur félagatalan því hækkað um 42. í árslok var hún
sem hér segir: Heiðursfélagar 6, kjörfélagar 2, ævifélagar 84 og ársfélagar 723,
alls 815 manns.
Stjórnendur og aðrir starfsmenn félagsins
Stjórn félagsins:
Guðmundur Kjartansson, mag. scient. (formaður).
Unnsteinn Stefánsson, cand. polyt. (varaformaður).
Eyþór Einarsson, mag. scient. (ritari).
Gunnar Árnason, búfræðikandídat (féhirðir).
Einar B. Pálsson, dipl. ing. (meðstjórnandi).
Varamenn i stjórn:
Sigurður Pétursson, dr. phil. Ingimar Óskarsson, náttúrufræðingur.