Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 52
16. mynd. Jarðvegstorfur sem ísinn hefur slitið úr botni krapadalsins og skilið eftir hér og
þar þegar ísinn bráðnaði. Ljósm. Jón Jónsson.
Botn þess er langt undir yfirborði Land-
brotsvatna. Stærsta lindin undan hrauninu
austanverðu er Vellankatla sunnan við
Þykkvabæ, sem hefur verið virkjuð fyrir
heimarafstöð. Rennsli mun vart hafa verið
minna en 0,5 m3/sek.
■ KRAPADALIR -
KRAPALAUTIR
Líklega kannast fáir við þetta orð aðrir en
þeir sem kunnugir eru í Landbroti, því það
sem svo er þar nefnt mun vart eða ekki
vera þekkt annars staðar. Landslag er hér
afar sérstætt og raunar einstætt, enda á það
sér næsta sérstæða sögu, eins og áður er að
vikið. Inni á milli hólanna, einkum
norðan- og austantil í sveitinni þar sem
jarðvegur er þykkur, eru víða lautir og
dalir, sem geta verið talsvert djúpir, al-
grónir, en undir jarðvegi sem er oft bara
40-50 cm þykkur er að jafnaði sandur. Að
mestu mun það foksandur og svo fínn að
notaður hefur verið sem pússningarsandur.
Að vetri til við ákveðin en engan veginn
óvanaleg skilyrði verður það sem er tilefni
yfirskriftar þessa kafla. I fyrstu vetrar-
hörkum frýs yfirborð lands ef snjólaust er.
í umhleypingasamri veðráttu sunnanlands
er ekki óvanalegt að snögglega breyti til
hláku og þá oft með stórrigningu. Við það
fyllast dalirnir vatni sem oft getur orðið
margra metra djúpt. Þetta kallast þá
krapadalir því að jafnaði byrjar úrkoman
með snjó (16. mynd). Næst þegar frystir og
ís kemur á þessar tjarnir getur það skapað
hættur fyrir menn og málleysingja, eink-
um ef snjór hylur og ísinn er veikur.
Tjarnir þessar eiga sér þó ekki langan
aldur. Vatn er þyngst við +4°C. Það safn-
ast því á botn tjamarinnar, þíðir hinn
frosna jarðveg, vatnið sígur niður og ísinn
leggst á botn dalsins. I næsta frosti frýs
hann við jarðveginn. Næst fyllist dalurinn
af vatni í hláku, ísinn flýtur upp og rífur
með sér torfu úr jarðveginum sem þá
hangir neðan í jakanum. Þegar hann svo
bráðnar sekkur torfan til botns. Áður en
svo verður kann jaka að hafa rekið til og
frá um tjörnina og torfurnar þannig lent
hingað og þangað. Þetta má nú m.a. sjá
norðan Landbrotsvegar lítið eitt sunnan
við Syðri-Vík, en ekki kæmi mér á óvart
50