Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 8
hafa stundum valdið miklu tjóni og í
Messína-skjálftanum mikla árið 1908 fór-
ust yfir 100.000 manns.
Vísbendingar eru um að svæðið sé að
lyftast um sem nemur um 1 mm á ári og í
dag má sjá um 1,5 milljón ára gömul
sjávarset í 400 m hæð suðaustan í Etnu og
í 700 m hæð í henni norðaustanverðri.
Uppbygging Etnu hefur verið allflókin
því segja má að hún samanstandi af nokkr-
um samvöxnum eldkeilum. Hin virka
miðja þessara eldkeila hefur stöðugt verið
að færast til vesturs og skilið eftir sig slóð
af allstórum öskjum, á línu til austurs frá
toppgígunum. Austur frá toppnum gengur
Uxadalur (Valle del Bove), 4 km breið og
7 km löng U-laga hvos sem ýmist er talin
mynduð við öskjusig eða stórt framhlaup
(sbr. 5. mynd). Austar er önnur minni
hvos, Valle di Calanna.
■ GOSVIRKNI
Gosvirkni í Etnu á sögulegum tíma má
skipta í tvo meginflokka. Annarsvegar er
stöðug gosvirkni í gígum á toppi fjallsins
og hinsvegar eru tíð sprungugos í hlíðum
þess.
Toppgígarnir
Fjórir megingígar eru í fjallstoppnum;
Norðausturgígurinn, La Voragine eða
Ginið, Bocca Nuova eða Nýi kjaftur og
Suðausturgígurinn. Langoftast stíga miklir
gufubólstrar upp af þessum gígum (sbr. 7.
mynd), stundum með svolitlu hraunrennsli
eða öskustrókavirkni, en veruleg eldgos
verða í þeim með eins til tveggja ára milli-
bili. Þessum gosum fylgir mikil ösku- og
gufumyndun og einnig nokkur hraunfram-
leiðsla.
Gos í Etnuhlíðum
Eldsgos í hlíðunum fjallsins
verða að jafnaði einu sinni til
tvisvar á áratug. Þar opnast
langar sprungur sem gjósa
hrauni og ösku í allmiklu
magni. Gosin byrja ofarlega í
íjallinu og færast niður eftir
hlíðinni þegar líður á gosið.
Meðan gos í hlíðunum standa
yfir er oftast algjört hlé á gos-
um í toppgígunum.
Jarðvegur er frjósamur í
hlíðum Etnu og þar ná akrar
upp um í 1000 m hæð. Þar er
einnig fjöldi bæja og þorpa og
stafar byggðinni einkum hætta
af hraunrennsli þegar gýs í
hlíðum fjallsins. Osjaldan hafa
fbúarnir þurft að horfa á eftir
húsum og frjósömum ökrum
undir glóandi hraunstrauma
sem velta niður hlíðarnar og
engu eira.
Mesta gos sem sögur fara af í
Etnuhlíðum varð árið 1669. Þá
mynduðust gígarnir Rauðufjöll
(Monte Rossi) í nánd við
bæinn Nicolosi sem er í um
o.fl. 1985).
54