Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 23
Stórhöfði
EYJAFJÖLLUM
ANKARAMÍTGÍGUR
OG -HRAUN
s
kemmtileg göngul'erð er inn
nreð Seljalandsá allt frá því að
hún steypist fram af fjallinu í
þeim fræga Seljalandsfossi til
þess er hún kemur fram úr Tröllagili,
um 5 km inni á heiðinni. Á leiðinni eru
nokkrir fallegir fossar sem sjást best ef
gengið er vestan ár inn hraunið sem fall-
ið hefur fram af brúninni við fossana tvo
sem þar gleðja augu vegfarenda.
■ STÓRHÖFÐI
Seljalandsá rennur milli hrauns og hlíða
sem næst alla leið innan frá Tröllagili.
Austur af mýrinni sem við það er kennd,
en í raun liggur ofan á þessu sama
hrauni, ns hátt fjall, snarbratl að vestan,
sem nefnt er Stórhöfði og nær um 550 m
hæð y.s. Vestan í honum eru 60-80 m
háir hamrar, dökkir á að líta og úr stuðl-
uðu bergi.
Gengið á Stórhúfða
Sé gengið á Stórhöfða norðan frá eftir
móbergshrygg kemur í ljós að þar er mó-
bergið ummyndað í kolsvarta steypu
næst hömrunum. Þetta svarta ummynd-
Jón Jónsson (f. 1910) lauk fil.lic.-prófi í jarðfræði
t'rá Uppsalaháskóla árið 1958. Hann starfaði hjá
Raforkumálaskrifstofunni og síðar Orkustofnun frá
1958 til 1980 er hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir. Eftir að hann lét af störfum hefur liann haldið
áfram rannsóknum, m.a. við Eyjafjallajökul og í
nágrenni við æskuslóðirnar í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Jón Jónsson er heiðursfélagi í Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi.
aða móbergslag er ekki þykkt (1. mynd) en
utan við það tekur við venjulegt brúnleitt mó-
berg. Aðeins handan þess sem myndin sýnir
eru áðurnefndir háir stuðlabergshamrar (2.
mynd).
1. mynd. Hamarinn (45 cm) hvílir á svörtu
ummynduðu móbergi nyrst á Stórhöfða.
Ankaramíthamrar til vinstri. Ljósm. Jón
Jónsson.
Náttúrufræðingurinn 66. (2), bls. 69-72, 1997.
69