Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 19
sífrera, en það er önnur saga. Tundra er
komið inn í plöntulandafræði úr rússnesku
en þangað segja Finnar það komið úr
finnsku. í rússnesku merkir tundra upp-
haflega skóglausa og votlenda sléttu en
finnska orðið tunturi er notað um skóg-
lausa kolla á lágum fjöllum og ásum í
norðurhluta Finnlands, þ.e. um skóglaus
svæði. Merking orðsins í plöntulanda-
fræði, eins og það er oftast notað nú, er því
nær finnsku merkingunni, en fyrst eftir að
farið var að nota orðið alþjóðlega var það
oft einkum notað í þrengri merkingu, þ.e.
um vot skóglaus svæði, sem er nær merk-
ingu rússneska orðsins.
Eins og sagði í upphafi hér að framan er
orðið tundra nú notað í plöntulandafræði í
merkingunni skóglaust svæði, gróið að
meira eða minna leyti, norðan (sunnan)
eða ofan náttúrulegra skógarmarka. Þess
vegna gengur það ekki að kalla öll slík
svæði freðmýrar á íslensku, það er einfald-
lega ekki rétt. En alþjóðlega orðið, því
alþjóðlegt er það orðið, fellur mjög vel inn
í íslensku sé það ritað túndra, það er þjált
og tekur prýðilega íslenskum beygingum.
Því finnst mér liggja beint við að nefna
þessi skóglausu svæði túndrur á íslensku
en halda áfram að kalla þau þeirra freð-
mýrar sem eru það í raun (3. mynd), því
þar á það nafn við. Jafnframt verðum við
að gera okkur grein fyrir því að þau
skóglausu svæði hér á landi sem eru ofan
eða norðan náttúrulegra skógarmarka eru
túndrur.
NoKKRAR HEIMILDIR
Alby, M. 1979. Dictionary of the Environment.
The MacMillan Press Ltd. London.
Billings, W.D. 1970. Plants, Man, and the Eco-
system. Second Edition. Wadsworth Pub-
lishing Company Inc. Belmont, California.
Daubenmire, R. 1978. Plant Geography with
special reference to North America. Aca-
demic Press, New York.
Dictionary of Scientific and Technical Terms
1981. Fourth Edition. McGraw-Hill. New
York.
Jackson, B.D. 1971. A Glossary of Botanic
Terms. Gerald Duckworth & Co. Ltd. Lon-
don.
Walter, H. 1968. Die Vegetation der Erde in
öko-physiologischer Betrachtung. Band II,
Die gemáBigten und arktischen Zonen.
Gustav Fischer Verlag. Stuttgart.
Walter, H. 1984. Vegetation of the Earth and
Ecological Systems of the Geo-biosphere.
Third, Revised and Enlarged Edition.
Springer-Verlag. Berlin
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Eyþór Einarsson
Náttúrufræðistofnun Islands
Pósthólf 5320
125 Reykjavík
Netfang höfundar
eythor@nattfs.is
65