Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 45
Kúfskel
VIÐ ÍSLAND
GUÐRÚN G. ÞÓRARINSDÓTTIR
OG SÓLMUNDUR TR EINARSSON
Kúfskel og ýmsar aðrar samlokur eru
verðmœt neysluvara víðsvegar um heim
vegna mikils eggjahvítuinnihalds og
bragðgœða. Frá því um síðustu alda-
mót hefur kúfskel verið veidd allvíða
hér við land, aðallega til beitu. Þessar
veiðar náðu hámarki á árunum 1920-
1945, en féllu nœr alveg niður eftir
það. Árið 1995 hófust veiðar á kúfskel
á ný, nú til útflutnings.
úfskel hefur verið veidd við
austurströnd Bandaríkjanna frá
árinu 1944. Veiðarnar jukust lil
_________ muna árið 1976 og hafa haldist
nokkuð stöðugar síðan. Arið 1993 var
heildaraflinn rúmlega 197 þús. tonn. Afli á
sóknareiningu hefur þó farið minnkandi
undanfarin ár. Kanadamenn hafa einnig
veitt lítið eitt af kúfskel og var afli þeirra 9
þús. tonn árið 1993 (FAO 1995). Með
minnkandi veiðum úr náttúrulegum stofn-
um kúfskelja og annarra skyldra tegunda
erlendis, og þar með aukinni eftirspurn,
Guðrún G. Þórarinsdóttir (f. 1952) lauk B.S.-prófi í
líffræði frá Háskóla íslands 1981, cand. scient.-prófi (
sjávarvistfræði frá Háskólanum í Arósum í Danmörku
1987 og doktorsprófi frá sama skóla 1993. Guðrún
starfar hjá Hafrannsóknastofnuninni.
Sólmundur Tr. Einarsson (f. 1941) lauk cand real prófi
í sjávarlíffræði frá Háskólanum í Bergen í Noregi 1972
og hefur starfað við botndýrarannsóknir hjá Hafrann-
sóknastolnuninni síðan.
hefur vaknað áhugi í íslensku þjóðfélagi
fyrir nýtingu kúfskeljar. Árið 1994 fóru
fram rannsóknir á vegum Hafrannsókna-
stofnunarinnar á kúfskeljastofninum við
Norðvestur-, Norður- og Austurland.
Niðurstöðurnar benda til þess að hér sé um
stóran stoln að ræða, sem með skyn-
samlegri nýtingu gæti skilað þjóðarbúinu
umtalsverðum tekjum.
■ LÍFSHÆTTIR KÚFSICELJAR
Kúfskel Arctica islandica (1. mynd) er
eina núlifandi tegund ættarinnar Arctic-
idae. Hún finnst nánast allt í kringum
ísland og lifir á 0-100 metra dýpi í
sendnum leirbotni, sandbotni eða skelja-
sandbotni. Kúfskel finnst á landgrunninu
beggja vegna Norður-Atlantshafs og er út-
breiðslan frá Nýfundnalandi alll suður
undir N-Karólínu við Ameríku en í Evrópu
er hún algeng við Færeyjar, Hjaltland og
Stóra-Bretland og með strönd meginlands-
ins allt frá Hvítahafi suður til Spánar.
Skelin sem Iiggur niðurgrafin í sjávar-
botninn, oft á 10-15 cm dýpi, er stað-
bundin en gelur fært sig upp og niður í
botnlaginu með hjálp fótarins (2. mynd).
Kúfskelin síar fæðuna úr sjónum með
hjálp tálknanna. Fæðan samanstendur af
örsmáum ögnum eins og plöntusvifi, dýra-
svifi, bakteríum og lífrænum leifum
planlna og dýra. Kúfskel er sérlega langlíf
og hægvaxta dýrategund. Dýrin geta orðið
Náttúrufræðingurinn 66 (2), bls. 91-100, 1997.
91