Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 62

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 62
9. mynd. Hermann J. Muller, 1890-1967 (Indiana Univer- sity). rnenn í Sovétríkjunum studdu, og þar með erfðakenningu Lysenkos. Ymsir búfræð- ingar töldu - með nokkrum rétti - að hefð- bundin erfðafræði hefði skilað takmörkuð- um hagnýtum árangri og bundu því vonir við hinar nýiu kenningar sovétmanna (sjá t.d. Fyfe 1950). í fæstum tilvikum nægði pólitísk sann- færing þó til að snúa erfðafræðingum til fylgis við Lysenko. Margir ágætir erfða- fræðingar í Sovétríkjunum voru dyggir stuðningsmenn stjórnvalda þar en þoldu niðurlægingu, frelsissviptingu og jafnvel aftöku frernur en að beygja sig undir boð- skap michurinista, eins og brátt verður vikið að. Einn virtasti erfðafræðingur Bandaríkj- anna á fyrri hluta þessarar aldar, Hermann J. Muller (9. mynd), sem hlaut nóbelsverð- laun í lífeðlisfræði 1946, sætti ofsóknum í heimalandi sínu vegna róttækra stjórn- málaskoðana. Þegar við bættust vandamál í einkalífi fluttisl hann til Berlínar 1932 og ári síðar til Rússlands, þar sem hann vann í Leníngrad og síðan í Moskvu. Eftir fjög- urra ára dvöl kvaddi hann Sovétríkin vegna yfirgangs Lysenkos og gagnrýndi eftir það erfðafræði hans harkalega, og ekki síður framkomu sovéskra yfirvalda við andstæðinga hans. Muller sagði boð- skap Lysenkos „álíka hindurvitni eins og það að jörðin sé flöt“. Þess eru mörg dæmi að vísindamenn hafi beitt sér fyrir skoðunum sem síðar reyndust rangar og samt haldið fullri virð- ingu, enda hafi þeir haldið í heiðri starfs- aðferðir fræða sinna. Lysenko virðist hins vegar allt frá upphafi ferils síns hafa not- fært sér pólitískt ástand í Sovétríkjunum til framdráttar kenningum sínum og gegn mönnum sem voru annarrar skoðunar. Muller lýsti þessu svo í blaðagrein 1948: „Árið 1933 eða þar um bil voru erfðafræðing- arnir Chetverikoff, Ferry og Ephroimson liver í sínu lagi sendir í útlegð til Síberíu og Levitsky í vinnubúðir á heimskautssvæði [Rússlands] í Evrópu... Erfðafræðingurinn Agol, sem var kommúnisti, var 1936 afgreiddur í kjölfar sögusagna um að hann hefði hlotið dóm fyrir „mensévíka hughyggju“ í erfðafræði... Virtir erfðafræðingar eins og Karpechenko, Koltzoff, Serebrovsky og Levitsky létust af ókunnum orsökum. Svo mikið er víst að síðan 1936 hafa sovéskir erfðafræðingar af öllum stigum lifað í angist. Flestir sem voru ekki fangelsaðir, reknir í útlegð eða teknir af lífi voru neyddir til að skipta um starf. Þeir sem fengu að vera áfram á rannsóknastofunum voru yfirleitt þvingaðir til að láta líta svo út að þeir væru að reyna að renna stoðum undir falsvísindi sem nutu stuðnings stjórnvalda. í glundroðanum í stríðslok tókst sumuni að komast undan til vesturlanda. Samt hafa nokkrir fengið að sinna sínu allan þennan tíma til þess að sýna um- heiminum að enn séu starfandi erfðafræðingar í Sovétríkjunum." (Tilvitnun sótt í Gardner 1957, bls. 144.) ■ VAVILOV Einn þekktasti erfðafræðingur Sovétríkj- anna á þessurn tíma var Nikolai Ivanovich Vavilov (10. mynd). Hann fæddist í Moskvu 1887, nam grasafræði í Cam- bridge og Lundúnum og sneri heim til 108
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.