Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 64

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 64
skoðanabræður hans báru mendelmorgan- ista þungum sökum - kenningar þeirra samræmdust hvorki díalektískri efnis- hyggju né darwinisma og skiluðu í ofaná- lag litlum hagnýtum árangri. Hermann Muller sat fundinn og lagði áherslu á litningarannsóknir og þann ár- angur sem þær hefðu skilað. Meðal ann- arra fundarmanna sem héldu uppi vörnum fyrir mendelska erfðafræði var Vavilov. Hann sætti þar harðri gagnrýni fyrir lítinn hagnýtan árangur í plöntukynbótum en svaraði með því að allar framfarir í jurta- kynbótum í Rússlandi styddust við hug- myndir hefðbundinnar erfðafræði, hvað sem gagnrýnendurnir segðu. Eftir fundinn var staða Vavilovs samt mjög ótrygg þótt nokkur ár liðu áður en honum væri endan- lega velt úr sessi. A næstu árum herti Lysenko enn sókn sína gegn mendelmorganistunum og boð- aði meðal annars að kynþáttakenningar nasista mætti rekja beint til hugmynda þeirra. Hann krafðist þess að bannað yrði að halda falskenningum vestrænnar erfða- fræði að nemendum í sovéskum mennta- stofnunum. A fundi í Landbúnaðarakademíu Leníns í Moskvu 1948 laust enn saman fylkingum Lysenkos og erfðafræðinga af gamla skól- anum. Meðal annars bar Lysenko á and- stæðinga sína að þeir hel'ðu brugðist þjóð sinni á örlagastundu, lokað sig inni í ffla- beinsturnum fræða sinna við fánýt störf eins og talningu á hlutfalli afbrigða ban- anaflugna, meðan michurinlíffræðingarnir hefðu hjálpað bændum að auka uppsker- una og stuðlað með því að sigri yfir inn- rásarherjum nasista. í fundarlok tilkynnti Lysenko að miðstjórn Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna hefði ákveðið að michurinlíffræðin væri rétt stefna í erfðafræði, sem beita skyldi við rannsóknir og kenna í skólum landsins. Létu andstæðingar hans þá af gagnrýninni, enda var hún orðin tilgangs- laus og auk þess hættuleg. Viðbrögðum fundarmanna var svo lýst í Prövdu: „Fundarmenn fögnuðu tilkynningu forsetans [Lysenkos]: Þeir risu sem einn maður úr sætum og hylltu lengi og ákaft miðstjórn flokks Leníns og Stalíns, fögnuðu hinum vitra leiðtoga og læriföður sovétþjóðanna, mesta fræðimanni vorra tíma, félaga Stalín..." (Gardner 1957, bls. 145.) Lysenko var sýndur margs konar sómi. Hann var sæmdur Lenínorðunni, hlaut í tvígang æðstu verðlaun Stalíns og var um skeið varaforseti Æðstaráðs Sovétríkjanna. Allar erfðafræðirannsóknir og plöntukyn- bætur í rannsóknastofnunum og á sam- yrkjubúum skyldu vera í samræmi við fræði hans, sem voru auk þess kennd í öllum skólum Sovétríkjanna. Hins vegar virðist hafa gengið illa að innleiða michurinlíffræði í háskóla og vísinda- stofnanir á áhrifasvæði Rússa í Austur- Evrópu. Einn þáttur í kenningum Lysenkos og fylgismanna hans var að einstaklingar sömu tegundar kepptu ekki innbyrðis. Þetta bitnaði meðal annars á skógrækt. Árið 1948 voru uppi áform um ræktun víð- áttumikilla nytjaskóga í Síberíu. í sam- ræmi við kenninguna var fræjum einnar trjátegundar sáð mjög þétt. Var talið að veikari plönturnar myndu veita hinum sterkari stuðning og að lokum stæðu að- eins sterk tré eftir og hóflega þétt. Eins og við mátti búast varð útkoman hins vegar sú að plönturnar kæfðu hver aðra og drápust. Staðhæfingar Lysenkos urðu því fárán- legri sem hann öðlaðist meiri völd. Frá því er greint í Encyclopædia Britannica að á árunum 1948 til 1953, þegar segja má að Lysenko hafi verið alvaldur í sovéskri líffræði, hafi hann haldið því fram að hægt væri að láta hveitigras bera rúgkorn ef rétt umhverfi væri valið. Þetta er, samkvæmt sömu heimild, „álíka trúlegt og að hundar sem lil'a í villtri náttúru ali af sér refi“. ■ HALLAR UNDAN FÆTI Eftir lát Stalíns 1953 dró úr stuðningi stjórnvalda við Lysenko. Krústsjov veittist harðlega að honum í ræðu 1954 og síðar varð hann víðar l’yrir opinberu aðkasti. 110
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.