Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1987, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1987, Síða 20
Ritfregnir í Mývatnssveit eru margar heims- kunnar jarðmyndanir, t. d. Hverfjall, Dimmuborgir og Kröflusvæðið. Fuglalíf á Mývatni og Laxá er jafnan talið á heimsmælikvarða, og gróður á svæðinu er sums staðar gróskumikill með afbrigð- um. Mývatnssveit og landið meðfram Laxá var friðlýst með sérstökum lögum árið 1974. Náttúruverndarráð hefur nú gefið út kort af Mývatnssveit þar sem sýnt er hvernig verndargildi einstakra land- svæða og jarðmyndana er metið. Kortið var unnið þannig að staðkunnugir nátt- úrufræðingar voru fengnir til að fara um svæðið til að meta verndargildi lands- lags, lífríkis og jarðmyndana. Með hlið- sjón af rituðum heimildum var gildismat- ið fellt saman á eitt kort. Er þetta í fyrsta sinn sem þess háttar kort af verndargildi lands er gefið út hér á landi. Kortið er prentað í fjórum litum og fylgir því fjölrit með lýsingum á merkustu svæðunum og ítarlegri heimildaskrá. Náttúruverndarráð hefur einnig gefið út fjölrit um gróður og dýralff á botni Mývatns (Yfirlitskönnun á botnlífi Mý- vatns, fjölrit nr. 18). Höfundar eru Arn- þór Garðarsson, Árni Einarsson, Gísli Már Gíslason, Guðmundur V. Helgason og Jón S. Ólafsson. í ritinu eru upplýs- ingar um þéttleika og útbreiðslu ýmissa helstu tegunda dýra og plantna á vatns- botninum. Eru þar á meðal ýmsar helstu fæðutegundir silungs og vatnafugla. Skýrslan byggir að mestu á gögnum sem Líffræðistofnun háskólans aflaði árin 1977,1981 og 1983, en miklar breytingar urðu á dýra- og plöntustofnunum á þessu tímabili. Náttúruverndarkortið og skýrslan um botnlífið eru fáanleg á skrifstofu Nátt- úruverndarráðs. Árni Einarsson Nóttúrufræöingurinn 57 (3), bls. 114,1987 114

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.