Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 21
Gísli Ólafsson: Laxveiðiferð með Færeyingum í Noregshafi 1982 INNGANGUR Áriö 1981 var ákveðið á fundum göngufiskanefndar (Anadromous and Catadromous Fish Committee) Al- þjóðahafrannsóknaráðsins að senda rannsóknamenn til veiðieftirlits og mæl- inga á laxveiðibáta frá Færeyjum. Hjalti í Jakupsstovu, fiskifræðingur við Fiskirannsóknastovuna í Þórshöfn átti að hafa umsjón með þessum athugun- um. Fyrirhugað var að senda menn frá Danmörku, íslandi, Noregi, Svíþjóð, írlandi og Bretlandi til Færeyja 1982. í stað þess að senda mann til Færeyja ætluðu Skotar að taka til greiningar öll þau hreistursýni sem safnað yrði í þess- um veiðiferðum. Eftir að samþykki fékkst til að senda mann héðan hafði veiðimálastjóri, Þór Guðjónsson, samband við þáverandi forstjóra Hafrannsóknastofnunarinn- ar, Jón Jónsson, um að fá mann frá Hafrannsóknastofnuninni í þetta verk- efni. Jón Jónsson sneri sér til höfundar þessa pistils og það fór svo að ég tók verkið að mér. Þór Guðjónsson setti mig síðan inn í verkefnið. Mér var ætl- að að fara út með laxveiðibátum, fylgj- ast með veiðum almennt og athuga hvort um merkta laxa væri að ræða í veiðinni, bæði með utanáliggjandi merkjum og veiðiuggaklippta laxa. Einnig átti að taka hreistur af laxinum, vigta hann og lengdarmæla. Þá var fylgst með því hve mikið væri um smá- lax (<60 sm) og hvað mikið af honum færi lifandi út aftur. Hingað til hefur mér vitanlega ekki verið greint frá nið- urstöðum þessarar veiðiferðar ef und- anskilin eru erindi flutt af höfundi hjá Landssambandi stangveiðifélaga (8. 10. 1983) og smá pistill í Ægi (Gísli Ol- afsson 1984). Ég fór til Færeyja 3. febrúar og hafði samband við Hjalta í Jakobsstovu dag- inn eftir. Hann sagði mér að enginn bátur væri inni en að ég færi á fyrsta bát sem kæmi til löndunar eða þann sem færi fyrstur út. Biðtímann notaði ég m.a. til að skoða Fiskirannsóknastov- una og heilsa upp á starfsfólk. Einnig fórum við Hjalti yfir verkefnalistann og fékk ég hjá honum mæliblöð, stöðva- blöð, hreisturpoka, mælibretti og reislu. Nokkrum dögum síðar tjáði Hjalti mér að ég myndi fara á vélbátinn Hamrafossur VA 50, en vegna veðurs dróst brottförin til miðvikudags 10. febrúar. Þann 9. febrúar fór ég ásamt manni frá Fiskirannsóknastofunni í frystihús- ið Bacalá, þar sem verið var að taka á móti 17 tonnum af laxi úr Hvítakletti. Þar vorum við mest allan daginn að fylgjast með því hvernig laxinn er flokkaður og pakkaður í stóra kassa eftir þyngd. Verðflokkarnir eru 6 og verðið á laxinum upp úr bát er 60-90 Náttúrufræöingurinn 57 (3). bls. 115-126. 1987 115

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.