Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 26
5. mynd. Mismunandi uggaklippingar á laxi. - Different types offinclips used for tagging
salmon.
ar) var örmerktur (sá fyrsti sem fram
kemur í veiði Færeyinga til þessa) og
var hann frá Skotlandi. Þrír laxanna
sem voru með utanáliggjandi merki
voru frá Ási í Noregi.
Alls voru 106 laxar úr aflanum vigt-
aðir bæði slægðir og óslægðir.
Minnsta-, mesta- og meðalþyngd
þeirra eftir stærð, er sýnd í Töflu 3.
Meðallengd þessara 106 laxa var 78 cm
eða 4 kg að meðalþyngd aðgerður
(Tafla 3). Samkvæmt þessu má áætla
að heildaraflinn í veiðiferðinni hafi ver-
ið um 10,7 tonn (2668 laxar, 4 kg hver)
af slægðum fiski.
AFLASAMSETNING
Afli á 1000 króka (6. mynd) sýnir
aflabrögðin miðað við tiltekna sókn
(sambærilegt við afla á togtíma). Afl-
inn var nokkuð breytilegur í einstökum
lögnum, en skýringin á mismunandi
afla er sennilegast fólgin í veðráttunni,
vont veður er gott laxaveður. Þá virðist
laxinn einnig taka betur í rökkurskilun-
um en á öðrum tímum.Lélegust var
veiðin í lögn nr. 16 (6. mynd). Þar er
skýringin sú að hvalavaða (sennilega
andarnefjur) kom er við vorum búnir
að draga u.þ.b. !6 af línunni, renndi sér
meðfram henni og át laxinn af. Eftir að