Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 33

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 33
Gunnar Jónsson: Þrjár nýjar fisktegundir á íslandsmiðum í bókinni íslenskir fiskar (Gunnar Jónsson 1983) er getið um 230 fisk- tegundir sem fundist hafa innan 200 sjó- mflna lögsögunnar við ísland. Eftir að sú bók birtist hafa nokkrar nýjar tegundir bæst við íslenska fiskaríkið. Hér á eftir verður greint frá þremur nýjum fiskteg- undum af íslandsmiðum. Tvær þeirra, sláni, Anotopterus pharao og bjúgtanni, Anoplogaster cornuta fundust 1985 en sú þriðja, blettaálbrosma, Lycenchelys kolthoffi fannst í mars 1986. 1 greininni hér á eftir er fylgt sömu reglu og í bókinni íslenskir fiskar þ.e. fyrst er stutt lýsing á tegundinni, greint frá geislum í bak- og raufaruggum og auk þess eyr- og kviðuggum ef ástæða þótti til og sagt frá fjölda hryggjarliða. Þá er sagt frá heimkynnum og getið lífshátta eftir því sem vitað er. SLÁNI Anotopterus pharao Zugmayer, 1911. Stærð: Lengsti sláni sem mældur hefur verið var 87 cm að sporðblöðku. Lýsing: Meðalstór miðsævisfiskur, langvaxinn og grannvaxinn en þunnvax- inn að framan. Haus er stór og einnig kjaftur og nær neðri skoltur lengra fram en sá efri (1. mynd). Á enda neðri skolts er brjósklaga tota sem teygist fram. Skoltar og gómbein eru tennt en plóg- bein og tunga eru tannlaus. Augu er mjög stór. Bakugga vantar en í stað hans er stór veiðiuggi andspænis raufarugga. Eyruggar eru í meðallagi stórir og lág- stæðir. Kviðuggar eru smáir og liggja aft- arlega. Hreistur vantar nema á rák. Eng- inn sundmagi. Litur er silfraður á fullorðnum fiskum en ungir fiskar eru svartleitir. Geislar R: 14-16, E: 12-15, K: 9-11; hrl.: 76-80. Heimkynni: Tegund þessi hefur fund- ist í Atlantshafi og Kyrrahafi. í NA-Atlantshafi undan ströndum Portú- gals og NV-Afríku, í Biskajaflóa og nú síðast á íslandsmiðum. í NV-Atlantshafi við V-Grænland og undan ströndum Bandaríkjanna. í S-Atlantshafi undan Namibíu og við Suðurskautslandið. í S- Kyrrahafi við Suðurskautslandið, í N- Kyrrahafi við Japan, Kamtsjatka, undan Kanada og Kaliforníu. í maímánuði 1985 veiddist 64 cm lang- ur sláni í norðanverðum Rósagarði suð- austur af landinu. Veiðiskip var togarinn Snæfugl SU. Vorið 1957 fannst haus af slána á dekki togarans Neptúnustar RE sem var að veiðum við V-Grænland og sumarið 1958 fannst annar slánahaus á dekki togarans Þorsteins Ingólfssonar RE sem einnig var að veiðum við V-Grænland. Talið er að hausar þessir hafi komið úr þorsk- mögum. Lífshœttir: Úthafs- og miðsjávarfiskur sem lítið er vitað um. Eftir útliti að dæma er þetta ránfiskur og í mögum nokkurra fiska hafa fundist fiskleifar. Sjálfur verð- Náttúrufræðingurinn 57 (3), bls. 127-130, 1987 127

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.