Náttúrufræðingurinn - 1987, Side 35
2. mynd. Bjúgtanni. Úr Woods & Sonoda (1973) - Anoplogaster cornuta aus Woods & Sonoda
(1973).
svipuðum slóðum í októberlok sama ár
og aftur var Hafþór RE að verki.
Lífhœttir: Lítið er vitað um lífshætti
þessarar tegundar. Eftir tönnum að
dæma mun þetta þó vera ránfiskur. í
maga hafa oftast fundist krabbadýr en
stundum einnig fiskar. Sjálfur verður
bjúgtanni öðrum stærri fiskum að bráð
og hefur hann m.a. fundist í mögum tún-
fiska, oddnefs (marlin), stóra földungs
og stinglax.
BLETTAÁLBROSMA
Lycenchelys kolthoffi Jensen, 1904.
Stœrð: 14 cm.
Lýsing: Lítill fiskur, langvaxinn, mjó-
vaxinn og þunnvaxinn aftan við miðju en
nær sívalur að framan. Haus er frekar
smár og flatur að ofan (3. mynd). Neðri
skoltur er styttri en sá efri (undirmynnt-
ur). Bak- og raufaruggar eru langir og
samtengdir um sporð en fyrir sporð-
blöðku vottar ekki. Bakuggi nær fram á
móts við miðja eyrugga. Eyruggar eru
alllangir. Kviðuggar eru smáir en greini-
legir og liggja framan við eyrugga eins og
tveir mjóir separ. Hreistur nær frá sporði
og fram á móts við framenda bakugga.
Kviður er hreisturlaus svo og haus. Rák
er tvískipt, miðlæg og kviðlæg og eru
báðar greinar ógreinilegar.
Litur er gulhvítur með fjölda brúnna
bletta frá haus og aftur á sporð.
Geislar: B+1/2S: 124, R+1/2S: 110, E:
14-15; hrl.: 116-119.
Heimkynni: Tegund þessi hefur fund-
ist við NA-Grænland (72°5’N og 17°6’V)
þar sem hún fannst fyrst, við NV-Græn-
land (á milli 69°0’N og 78°4’V), á mótum
Karahafs og Barentshafs norðan Novja
Semlja og nú síðast hér við land.
Við ísland fannst tegund þessi í mars
1986 á 298-411 m dýpi út af Vopnafjarð-
argrunni (66°0’N og 12°’V) í leiðangri
Hafrannsóknastofnunar á togaranum
Brettingi NS.
129