Náttúrufræðingurinn - 1987, Side 37
Flosi Björnsson:
Gosminjar í grennd við
Kvíárjökul
INNGANNGUR
Hin síðari ár hefur verið unnið
nokkuð að jarðfræðilegum rannsókn-
um í Öræfum á SA-landi, og sitthvað
næsta markvert verið leitt í ljós á því
sviði sem kunnugt er. Einnig um svæði
það, sem hér verður minnst á, (svo
sem um Kvíárjökul, Kambana við
jökulinn, Svarthamrahraun, að nokkru
hraun í fjöllum, bergfræðilega lýsingu
fjallanna o. fl.) þótt þær athuganir verði
ekki ræddar hér. Það mun samt engan
undra þó enn skorti á rannsóknir og
jafnvel nægilega glöggar frumathugan-
ir sums staðar innan sveitarinnar, enda
rannsóknarefnin margvísleg á voru
landi. Eitt þeirra svæða, sem ástæða
væri til að fá gleggri vitneskju um en
nú er fyrir hendi, svo mér sé kunnugt,
er raunar í grennd við Kvíárjökul,
þ. e. a. s. fjalllendið báðum megin
jökulsins: Vatnafjöll og Staðarfjall,
ennfremur Hnúta, ásamt hinu lægra
landi þar fram undan.
Er það efni þessa greinarkorns að
víkja að nokkrum forvitnilegum atrið-
um, aðallega í sambandi við gosminj-
ar. Hvað átt er við, má skýra með
örfáum orðum, sem tekin eru úr Ár-
bók Ferðafélags íslands 1979 um
Öræfin, eftir Sigurð Björnsson, bls.
112:
“Einhverntíma hefur verið eldvarp þar
sem Kvíárjökull er nú, og hefur það
skilið eftir hraun bæði á Staðarfjalli og
Vatnafjöllum. Sýnilegt er að hraun hef-
ur runnið ofan af hábrún Vatnafjalla og
storknað þar sem nú heitir Vatnafjalla-
mosar, og ná að gljúfri Vattarár. Benda
líkur til að þar hafi verið jökull þegar
hraunið rann . . . Milli . . . (Vattarár)
og Kvíáraurs er dálítið hallandi land,
heldur lítið gróið. Það mun vera mynd-
að úr efni, sem borist hefur úr fjöllun-
um í kringum Vattará. Hefur enn ekki
verið skýrt til hlítar með hvaða hætti
þetta hefur myndast. Svæði þetta nefn-
ist Öldur“.
Skal hér vikið að þessu nokkru nán-
ar, en taka vil ég skýrt fram að það
sem hér fer á eftir, er að sjálfsögðu
aðeins ábendingar.
HRAUN, GANGAR O. FL.
Kunn eru á þessu svæði Svarthamra-
hraun innst og vestan við Kvíármýr-
arkamb, og hraun framarlega í austur-
hlíðum Vatnafjalla, þar sem kallað er
Vatnafjallamosar (og að mestu gróið).
Hið þriðja í Vatnafjöllum nokkru inn-
ar. Hraunmyndun finnst og uppi á
Náttúrufræðingurinn 57 (3), bls. 131-135,1987
131