Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 19
DREIFING FELDSPATDÍLA í ÞREMUR BOR-
KJÖRNUM í ÞJÓRSÁRHRAUNI
10 20 % Dílomogn
JT-I . 1
(\
W
n' 1,1
i! V
v t-^
V ^ J
/ / 1 1 1 1 1 1 /
!
/ 1
/ --.ZL.r-.-~—'—>
/ x ,(
[H — BOTN NK-I NK-I — BOTN NK-2 NK_2
ÁRHRAUN
y-BOTN ÁRHRAUNS HOLUNNAR
5. mynd. Dreifing feldspatdfla í borkjörn-
um úr Þjórsárhrauni. - The vertical distri-
bution of plagioclase phenocrysts in cores
from the Þjórsá lava.
mósins mælist ögn hærri en koluðu kvist-
anna undan hrauninu. Mórinn hefur ver-
ið í myndun á nokkru árabili fyrir gosið
og sýnir því hámarksaldur hraunsins.
Kvistirnir mega hins vegar heita jafn
gamlir því. Aldur hraunsins telst því vera
7800 ár í hefðbundnum geislakolsárum,
þar sem reiknað er með 5568 árum sem
helmingunartíma C-14 kolefnis.
HNATTRÆN ÁHRIF
ÞJÓRSÁRHRAUNSGOSSINS
Það fer vart hjá því að slíkt stórgos sem
Þjórsárhraunsgosið hefur verið, hafi
skilið eftir sig spor utan íslands. Eldmist-
rið ætti að hafa borist víða um norður-
hvel jarðar og litað sól og mána rauð sem
blóð. En þeir steinaldarmenn sem þá
reikuðu um Norður-Evrópu skráðu ekki
annála á blöð. Allan fróðleik um þetta
gos verður að lesa af blöðum jarðlag-
anna. Leitað hefur verið eftir ummerkj-
um þess í ískjörnum frá Grænlandsjökli.
Stærstu eldgos á sögulegum tíma á ís-
landi, Skaftáreldar 1783-4 og Eldgjá um
930, hafa skilið eftir sig glögg spor í inn-
landsísnum á Grænlandi. Þessi spor eru
ekki í mynd öskulaga, heldur súru og
brennisteinsríku úrfelli, sem skilar sér á
jökulinn á fyrstu mánuðum og árum eftir
að stórgos hafa orðið á norðurhveli jarð-
ar. Sigfús Johnsen, sem er manna fróð-
astur um Grænlandsjökul, hefur borið
aldursgreiningu Þjórsárhraunsins saman
við gögn um stórgos, sem vart verður við
í jöklinum og eru eftirfarandi vangavelt-
ur byggðar á upplýsingum hans. Tveir
langir borkjarnar hafa verið teknir úr
Grænlandsjökli og í þeim hafa ummerki
eldgosa verið könnuð 10.000 ár aftur í
tímann. Þessir kjarnar eru nefndir Camp
Century og Dye 3. Neðarlega í Camp
Century kjarnanum finnast spor eftir
gríðarmikið eldgos sem átt hefur sér stað
einhversstaðar á norðurhveli jarðar
snemma á nútíma. í fyrstu var talið að
aldur þessa goss væri 9600 ár (Hammer
o. fl. 1980, Hammer 1984). Síðar hefur
komið í ljós að aldur neðri hluta Camp
Century kjarnans var ofmetinn (Ham-
mer 1986). í Dye 3 kjarnanum virðast
ummerki eftir þetta sama stórgos sjást á
um 1715 m dýpi (Hammer o. fl. 1985).
Samkvæmt aldursgreiningum á kjarnan-
um hefur þetta gos orðið fyrir 8700 ±150
árum (Hammer o. fl. 1986).
Nú er spurningin sú, hvort gos sem
reynist 7800 ára með geislakolsmælingu
geti verið það sama og mælist 8700 ára
með aldursgreiningaraðferðum þeim
sem notaðar eru á ískjarna úr Græn-
landsjökli. Þessar greiningaraðferðir eru
óháðar hvor annarri. í ískjarnanum eru
árin beinlínis talin líkt og árhringar í tré,
með því að skoða árslögin í ísnum. Ald-
13