Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 35
2. mynd. Kapilluþræðir og gró af Bovista limosa (nr. 9543) í Náttúrugripasafninu á
Akureyri. - Capillitium and spores of Bovista limosa. (MyndIphoto Helgi Hallgríms-
son).
um ættkvíslina Bovista, að þetta væru
aðskildar tegundir og gildir því hið
upphaflega fræðinafn Rostrups.
Samkvæmt Kreisel (1967) hefur B.
limosa einnig fundist í Svíþjóð, Bret-
landi, Belgíu og Austurríki, ennfrem-
ur í norðurhluta Bandaríkja N. Amer-
íku. Útbreiðsla hennar virðist vera
fremur meginlandskennd og norðlæg
(boreal-continental), og kemur það
vel heim við fundarstaðinn hérlendis.
Hér fannst tegundin fyrst 6. sept-
ember 1984, við býlið Bárufell í út-
jaðri Akureyrarbæjar að norðan, og
skammt fyrir sunnan verksmiðjuna í
Krossanesi. Þar var allmikið af henni í
gömlu, hálfgrónu flagi, sem hefur lík-
lega verið kartöflugarður fyrir all-
mörgum árum, en er nú að mestu
þakið lágum mosagróðri, enda nokk-
uð rakt. Helstu mosategundir voru
Dicranella tegundir, Leptobryum
pyriforme og Bryum tegundir, en á
stangli uxu língresistegundir og beiti-
eski (Equisetum variegatum). Myndir
voru teknar á staðnum, og fylgir ein
þeirra hér með, og fáeinum eintökum
safnað (nr. 9543 í sveppasafni
Náttúrugripasafnsins á Akureyri).
Rétt fyrir neðan fundarstaðinn er
smávík, sem nefnd er Jötunheimavík,
eftir síldarstöð sem Norðmenn ráku
þar á fyrstu áratugum aldarinnar, og á
heimsstyrjaldarárunum voru skála-
hverfi Breta ekki fjarri staðnum.
Þar sem dvergkúlan hefur enn ekki
fundist annarsstaðar hér á landi, þykir
mér líklegast að hún hafi slæðst hing-
að frá þessum löndum, en vonandi
hefur hún náð slíkri fótfestu þarna að
29