Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 62
endunum veginn að meiri þekkingu. Þeir
gefa þó afar víðtæka en mjög misgóða
mynd af íslenskri eldvirkni og því sem um
hana er vitað. Að skaðlausu hefði mátt
fækka eitthvað tilvitnunum í margívitnað-
ar greinar, eins og t.d. öskjugrein Krist-
jáns Sæmundssonar. I staðinn hefði mátt
vitna í sígilt verk eins og Eldfjallasögu
Porvaldar Thoroddsens eða yfirlitsrit
Nolls um íslenska sprengigíga eða annað
efni, sem íslandseldar sjálfir taka lítið eða
ekki á.
Ef texta þessarar bókar hefði verið tek-
ið tak og hann hreinsaður af þeim göllum,
sem hér hafa verið ræddir, ljósmyndir ör-
lítið betur valdar og skýrðar, skýringar-
myndirnar betur vandaðar og úthugsaðar
og hinum „hugsanlegu" fyrirbærum eld-
fjallasögunnar fækkað verulega, þá hefði
verið hér á ferðinni frábær bók. Til þess
hefur hún alla tilburði, bæði útlits og inni-
halds, og til þess hefur hún greinilega
bakhjarlinn, Ólaf Ragnarsson. Áræði hans
sem bókaútgefanda er greinilega mikið og
metnaður hans til þess að gera vel virðist
vera meiri en í meðallagi, en hæfari ráð-
gjafa hefði hann samt þurft að hafa í þessu
tilviki.
Utlit og frágangur bókarinnar er með
miklum ágætum. Hún grípur því augað,
eins og kallað er. Textinn á hlífðarkáp-
unni gefur hins vegar ekki sérlega gagn-
legar upplýsingar um bókina en leggur
áherslu á staðhæfingar með yfirborðslegt
áróðursgildi, t.d.: „Þetta er ein allra glæsi-
legasta bók sem út hefur komið hér á
landi“. Skaði að glæsileikinn skuli bara
vera á yfirborðinu.
Páll Imsland,
Norrœnu eldfjallastöðinni.
TILVITNANIR
Guömundur G. Bárðarson. 1929. Geologisk
Kort over Reykjanes-halvöen. - 18. Skandi-
naviske Naturforskermöde, Köbenhavn, 6
bls.
Guðmundur E. Sigvaldason, Sigurður Stein-
þórsson, Níels Óskarsson & Páll Imsland.
1976. The simultaneous production of bas-
alts, enriched and depleted in large litho-
philic trace ions (LIL), within the same fiss-
ure swarms in Iceland. - Bull. Soc. Geol.
France 7: 863-867.
Kristján Sæmundsson. 1971. Relation between
geological structure of Iceland and some geo-
logical anomalies (Abstract). First European
Earth and Plante. Phy. Colloq. 30/3-2/4,
1971, Reading, England.
Kristján Sæmundsson. 1982. Öskjur á virkum
eldfjallasvæðum á íslandi. - Bls. 221-293 í
Eldur er í norðri, Sögufélag, Reykjavík.
Kristján Sæmundsson. 1983. Hálfrar aldar þögn
um merka athugun. - Náttúrufræðingurinn
52: 102-104.
Levathes, L.E. 1987. Iceland, life under the
glaciers. - National Geographic 171: 182-215.
Markús Loftsson. 1930. Rit um jarðelda á fs-
landi. - ísafoldarprentsmiðja hf., Reykjavík,
2. útg. 326 bls.
Noll, H. 1967. Maare und maar-ahnliche
Explosionskrater in Island. - Sonderveröff.
d. Geol. Inst. d. Univ. Köln, no. 11, 117 bls.
Sveinn P. Jakobsson. 1979. Outline of the
petrology of Iceland. - Jökull 29: 57-73.
Walker, G.P.L. 1959. Geology of the Reydar-
fjordur area, eastern Iceland. - Quart. Journ.
Geol. Soc. London 114: 367-393.
Walker, G.P.L. 1963. The Breiddalur central
volcano, eastern Iceland. - Quart. Journ.
Geol. Soc. London 119: 29-63.
Þorleifur Einarsson. 1968. Jarðfræði, saga bergs
og lands. - Mál og menning, Reykjavík, 335
bls.
Þorvaldur Thoroddsen. 1925. Die Geschichte
der islándischen Vulkane. - D. Kgl. Danske
Vidensk. Selsk. Skrifter, Naturvidensk. og
Mathem. Afd. 8, IX. Köbenhavn, XVII +
458 bls. + Taf.
56