Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 23
Kristján Lilliendahl Guðmundur A. Guðmundsson og Ólafur Einarsson: / Skeggþerna á Islandi Það telst til tíðinda þegar ný fuglateg- und sést á íslandi. Slíkt gerist ef til vill tvisvar á ári. Heppnin var því með okkur höfundunum föstudaginn 24. aprfl 1987. Við sáum skeggþernu (Chlidonias hybri- dus), tegund sem ekki er vitað til að hafi sést áður hér á landi. Skeggþerna tilheyr- ir máfaætt (Laridae) og er í undirætt þerna (Sterninae). Fuglinn er náskyldur kríu (Sterna paradisaea), og líkist henni talsvert í útliti (1. mynd). Þennan dag vorum við að athuga komu farfugla á Reykjanesi. Veðrið var hráslagalegt, sunnan kaldi, hiti um 5 gráður og skýjað með köflum. Síðla dags ákváðum við að huga að fuglalífi í kaup- túninu Garði í Gerðahreppi í Gull- bringusýslu. í Garði eru þrjár allstórar tjarnir, sem kallaðar eru Síkin. Tjarnir þessar eru á bak við sjávarkamb sem snýr mót norðaustri. Þegar við komum að Miðhúsasíki, sem er miðtjörnin, tókum við strax eftir fugli í ætisleit yfir vatninu. Fljótt á litið gat þetta verið kría sem fengið hefði á sig einhvern dökkan lit en við nánari athugun fékk það ekki staðist. Við áttum ekki von á kríum þarna fyrr en nokkrum dögum síðar. Augljóst var af líkamsbyggingu fuglsins að um þernu var að ræða. Höfuðið var líkt og á kríu með svarta hettu, rautt nef og hvíta kinn. Að hettunni slepptri virtist fuglinn allur jafn- grár að ofanverðu. Grái liturinn var ívið dekkri en á kríu, nánast öskugrár. Háls og bringa voru dökkgrá, en síða og fremri hluti kviðar voru enn dekkri, grá- svört. Aftari hluti kviðar var dökkgrár að framan en síðan ljósari aftur undir stéli og undirstélþökur voru hvítar. Und- irvængur virtist að mestu ljósgrár en nokkrar af ystu handflugfjöðrunum voru dökkar í endann og sú ysta var einnig dökk á útjaðri. Kom þannig fram grann- ur dökkur jaðar bæði á fram- og aftur- brún vængs. Þessi jaðar var minna áber- andi að ofanverðu en sjá mátti að endar handflugfjaðra voru misdökkir (2. og 3. mynd). Stél var frekar stutt og lítillega sýlt en ekki klofið eins og á kríu. Fætur voru rauðir eins og nefið. Vængirnir voru hlutfallslega styttri og breiðari heldur en kríuvængir. Stærð fuglsins var borin saman við hettumáfa (Larus ridi- bundus) sem einnig voru þarna á flugi. Álitum við stærðina vera svipaða og kol- þernu (Chlidonias niger) sem er talsvert minni en kría. Fuglinn var greindur sem skeggþerna. Skeggþernan virtist tína æti úr yfir- borði tjarnarinnar líkt og kríur gera stundum. Hún flaug hægt á móti vindi í um 3 m hæð og tók dýfur af og til. Þegar fuglinn var kominn að enda tjarnarinnar flaug hann til baka yfir tjörnina og beitti upp í vindinn á nýjan leik. Athugunin hófst klukkan 18.15 og stóð yfir til 19.00 nema hvað skeggþernan hvarf í um tíu mínútur, eftir að hettumáfur hafði ráðist Náttúrufræðingurinn 58 (1), bls. 17-20, 1988 17

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.