Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 31

Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 31
Árið 1941 fann kínverskur skógarvörð- ur T. Wang að nafni allstórt tré, sem hann þekkti ekki og gat ekki greint til tegundar, í Szechuanhéraði í Mið-Kína. Hann tók greinabúta og köngla af trénu og fór með þá til landa síns W.C. Cheng prófessors í grasafræði, sem áttaði sig fljótlega á því að þessi tegund var frá- brugðin öllum öðrum núlifandi trjám í Kína. Cheng hafði sambandi við annan kínverskan grasafræðing, H.H. Hu, og taldi hann að hér væri um að ræða teg- und, sem hlyti að tilheyra kínarauðviði. Þeir Cheng og Hu skrifuðu grein um uppgötvarnir sínar og birtu í kínversku tæknitímariti, en sendu sýni af trénu til tveggja bandarískra sérfræðinga. Annar þeirra var hinn kunni fornjurtafræðingur R.W. Chaney, sem var ekki í neinum vafa um að þetta væri kínarauðviður, og staðfesti þannig greiningu þeirra félag- anna. Árið 1948 hélt Chaney til Kína ásamt M. Silverman, einum ritstjóra blaðsins San Francisco Cronicle til þess að sjá tréð með eigin augum. Þeir flugu til Chunking og tóku þar fljótabát niður eft- ir Yangtze-fljóti til borgarinnar Wan- hsien. Þá tók við þriggja daga gönguferð yfir fjöllótt svæði inn í mitt Szechuan- hérað. Herflokkur var látinn fylgja þeim seinni hluta leiðarinnar vegna þess að ræningjahópar voru mjög aðgangsharðir á þessum slóðum. Þegar þeir komu niður í Mo-tao-chi-dal, þar sem Wang hafði upphaflega fundið tréð, vöktu þeir mikla athygli því að þeir voru fyrstu hvítu mennirnir, sem dalbúar höfðu séð. Fór því svo að íbúar dalsins fylgdu þeim ásamt búsmala sínum, meðal annars svínum og hænsnum, að þremur kína- rauðviðartrjám, sem uxu þar rétt hjá hrísgrjónaakri. Jafnframt var þeim sagt að miklu fleiri slík tré yxu í nágranna- héraðinu Hupeh. Þeir Chaney og Sil- verman héldu því næst til þorpsins Shui- hsa-pa og fundu þar fleiri hundruð kína- rauðviðartré á svæði, sem er því sem næst á sömu breiddargráðu og New Orl- eans, og í um það bil 1200 m hæð yfir sjó. Úrkoman á þessu svæði er um 130 cm á ári og jarðvegurinn frekar rakur, en svæðið er sólríkt. Stærsta tréð, sem þeir fundu í ferðinni, var um 27 m hátt, en alls fundu þeir um það bil 1000 tré af kína- rauðviði (Hewes 1981). Chaney varð starsýnt á gróðursamfé- lagið í nágrenni Shui-hsa-pa og fannst það bera mjög fornan svip. Hann hafði raunar ekki séð slíkt samfélag lifandi áð- ur, það var eingöngu þekkt úr jarðlög- um. Ásamt kínarauðviði settu einkum eikartré, Sassafras (tré af lárviðarætt), amberviður (Liquidambar tilheyrir nornahesli) og Júdasartré (katsura vex í Kína og J apan) svip sinn á trjágróðurinn. Á leiðinni til baka lentu þeir Chaney og Silverman í ýmsum hrakningum og má þar nefna að ræningjar réðust á þá og það var ekki fyrr en þeir skutu einn árás- armannanna að hinir lögðu á flótta. Áð- ur en þeir héldu aftur til Bandaríkjanna hittu þeir fulltrúa kínverskra yfirvalda og hvöttu þá til þess að friða svæðið þar sem kínarauðviðurinn vex, en þeir töldu tréð vera í útrýmingarhættu. Það varð þó ekki fyrr en árið 1965 að kínverska stjórnin friðaði gróðursamfélagið í Mo- tao-chi-dal. Nú hefur kínarauðviður ver- ið gróðursettur víða í Mið- og Suðaust- ur-Kína, enda kom í ljós að tréð vex allhratt og er góður landnemi og hefur oft verið notað sem fyrsta tré þegar ný svæði hafa verið tekin undir trjárækt. Chaney tók með sér fjórar ungar plöntur af kínarauðviði til Bandaríkjanna og gróðursetti þær á lóð Berkley-háskóla í Kaliforníu. Þaðan hefur tréð síðan breiðst út og finnst nú allvíða í Banda- ríkjunum, Evrópu og Asíu. Á vetrum er auðvelt að þekkja kína- rauðvið frá öðrum rauðviðartegundum því að hann fellir nálarlaga blöðin. Stærstu trén verða 42 m há og tæpir 2 m í 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.