Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 34

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 34
1. mynd. Dvergkúla Bovista limosa í mosalendi við Bárufell á Akureyri. - Bovista limosa at the sampling site. (MyndIphoto Helgi Hallgrímsson). stuttum (5-10 (x), litlausum hala, sem stundum er boginn í endann. Dvergkúlan vex á þurru eða hálf- röku mosalendi, nokkur eintök á stangli. Dvergkúlan er nokkuð auðþekkt frá öðrum íslenskum kúlusveppum á þeim einkennum sem hér voru talin. Bæði blýkúla og melkúla geta verið af svipaðri stærð, þótt þær séu oftast stærri (1-2 cm), en blýkúlan er nær alltaf blýgrá þegar hún þroskast og losnar upp, en melkúlan er oftast grá- brún og hefur sjaldan neina munn- flipa. í vafatilfellum verða þessar teg- undir þó aðeins aðgreindar með smá- sjárskoðun, en töluverður munur er á lögun gróanna, því að þau eru meira eða minna egglaga hjá melkúlu og blýkúlu, og kapilluþræðir þeirra eru með miklu greinilegri aðalstofnum. Hjá dvergkúlunni eru kapilluþræðirnir millistig milli ættkvíslanna Bovista og Lycoperdon, og því hefur hún af sum- um verið sett í sérstaka ættkvísl, Bov- istella, ásamt fáeinum öðrum tegund- um. Tegundinni Bovista limosa var fyrst lýst af danska sveppafræðingnum Em- il Rostrup 1894, eftir eintökum frá Gásefjord á Austur-Grænlandi (um 70° n. br.). Síðan fannst hún á nokkr- um stöðum við Syðra-Straumfjörð á Vestur-Grænlandi (Lange, 1948) og á ýmsum stöðum í Noregi (Eckblad, 1955). Bæði M. Lange og F. E. Eck- blad töldu hana samnefnda við Bov- ista echinella Pat., sem lýst var frá Andesfjöllum í Equador, en H. Kreis- el (1967) sýndi fram á, í ritverki sínu 28

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.