Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 40

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 40
(1) Kúlur sem eru myndaðar úr lifandi þörungum (true lake balls eða aega- gropiloids, echte Seeballe, Seeknödel eða Aegagropilen). Hér á landi þekkj- ast þær úr Mývatni og kallast kúluskít- ur (Arni Einarsson 1985). (2) Vatnamýs (false lake balls, un- echte Seeballe) eru úr dauðum lífræn- um efnum, svo sem rotnandi vatna- plöntum, dauðum plöntum af vatns- bökkum, barrnálum, jarðvegsflyksum og dýraleifum. Vatnamýsnar, sem hér eru til umfjöllunar, eru af þessum flokki. (3) Vatnamýs úr mosa eða þörungum, sem eru að því leyti líkar þörungakúl- unum, að þær eru úr lifandi plöntum en myndast á sama hátt og vatnamýs, þ.e. vefjast upp fyrir atbeina strauma og öldugangs. Af þessum þremur hópum eru þessar myndanir langsjaldgæfastar og virðast ekki hafa fundist hérlendis. Áður en þetta greinarkorn var ritað, spurði ég nokkra valinkunna menn að því, hvort þeir könnuðust við vatnamýs héðan frá Islandi. Svör voru í flestum tilfellum neikvæð, en Helgi Hallgríms- son hafði þó fundið vatnamýs á einum stað í Eyjafirði, eins og hér er greint frá: Bakkatjörn, neðan við Syðri-Bakka, Arnarneshreppi, Eyf. Júlí 1982. Þarna voru nokkrar vatnamýs, flestar á stærð við hrossaskít, allar svipaðar að lögun (sjá 3. mynd). Ég hafði tækifæri til þess að mæla eina þeirra og var hún 47 x 35 x 23 mm. Bakkatjörn er lítið sjávarlón sem alla jafna er með hreinum sjó. Eru þetta einu íslensku vatnamýsnar sem ég veit um úr söltu vatni. Sú sem ég hafði til at- hugunar reyndist samansett úr mosa- tegundinni Hygrohypnum ochraceum (Wils.) Loeske, sem mun vera algeng- asta mosategund í lækjum hér á landi (B.J., munnl. uppl.). Enginn lækur rennur í Bakkatjörn, svo mestar líkur eru á, að mosinn hafi borist um sjó úr ám í grenndinni. Vatnamýsnar úr Bakkatjörn voru allar 5-7 cm að lengd, að sögn Helga, eða ívið stærri en þær sem ég fann í fersku vatni. Fróðlegt væri að heyra frá lesendum, hvort þeir kannist við þessi fyrirbæri. ÞAKKIR Helgi Hallgrímsson veitti mér góð- fúslega upplýsingar um vatnamýs frá Eyjafirði. Bergþór Jóhannsson greindi og veitti upplýsingar um mosategund- irnar, en Erling Ólafsson las yfir hand- ritið og færði ýmislegt til betri vegar. Þakka ég þeim öllum. HEIMILDIR Árni Einarsson. 1985. Botn Mývatns. For- tíð, nútíð, framtíð. -Náttúrufr. 55:153- 173. Jón Eyþórsson. 1950. Jöklamýs. - Náttúru- fr. 20: 182-184. Jón Eyþórsson. 1951. Jökla-mýs. - J. Glaciol. 1: 502-503. Luther, H. 1979. Aquatic moss balls in southern Finland. - Ann. Bot. Fennici 16:163-172 Schloesser, D.W., J.K. Hiltunen & R.W. Owens. 1983. Rediscovery of lake balls in Lake Michigan. - J. Freshw. Ecol. 2: 159-163. Tirén, T. 1983. Om sjöbollar. - Fauna och flora, Upps. 78: 73-74. 34

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.