Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 33
Páll Imsland
Ungt félag og
nýtt tímarit um steina
Ilvaít, (CaFe22+Fe3+[0H/0/Si207]).
Steindin ilvaít kristallast í orthórombíska
kerfinu, hefur hörkuna 5,5-6 og eðlisþ. í
kring um 4. Hún er svört eða svargrá
með glergljáa og myndast helst samfara
ummyndun í nágrenni innskota við út-
fellingu úr tiltölulega heitum lausnum.
Sýnið er fundið í nágrenni Þyrils í Hvalf-
irði, en þar er aðalfundarstaður ilvaíts
hérlendis. Kristallarnir á myndinni sitja
á klalsíti og eru um það bil 3 mm að
stærð. Nánar má lesa um ilvaít í ýmsum
yfirlitsbókum í steinafræði og svo í grein
eftir Svein Jakobsson í 1. tbl. Steins. The
mineral ilvait from Hvalfjörður Iceland.
(Ijósm. photo Sigurður Sveinn Jónsson)
Hinn 25. nóvember 1983 var stofn-
að í Reykjavík Félag áhugamanna um
steinafræði. Að stofnun þess stóðu 13
einstaklingar, sem hafa áhuga á stein-
um og steinafræði. Félagið er opið
áhugamönnum og geta þeir snúið sér
bréflega til Félags áhugamanna um
steinafræði, Pósthólf 8705, 128 Rvík
með fyrirspurnir varðandi félagið. Fé-
lagsfundir eru að jafnaði haldnir einu
sinni í mánuði yfir vetrartímann og
farnar eru fræðslu- og skoðunarferðir
á sumrum. Félagið hefur staðið að
tveim steinasýningum í Reykjavík.
Náttúrufræðingurinn 58 (3), bls. 151-152, 1988.
151