Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 37
NÁTTÚ RU FRÆÐIN GURIN N
183
berum vettvangi, og meðal annars lýsti Bunsen því yfir í stórmerku
þýzku vísindatímariti að von Waltershausen hafi gert tilraun til
að hrinda sér ofan í hraungjótu við Heklu.
Fyrstu tilraunir til gassöfnunnar í eldgíg, sem bera verulegan
jákvæðan árangur voru gerðar af Day, Shepherd og Jaggar á Kilauea-
dyngjunni á Hawaii. Aðstæður til gassöfnunar á þessurn stað voru
sérlega hagstæðar, þar sem tveim veigamiklum skilvrðum til gas-
söfnunar var fullnægt. I fyrsta lagi var hraunið í Halemaumau
hrauntjörninni tiltölulega aðgengilegt svo að unnt var að flytja
þangað hvers konar tæki og auðvelt að fylgjast með breytingum
frá degi tif dags. í öðru lagi var hrauntjörnin kvik í mörg ár svo
að nægur tími var tii að finna aðferðir, sem bezt hentuðu til gas-
söfnunar á þessum stað.
Af öðrum tilraunum, sem hafa borið einhvern jákvæðan árang-
ur má nefna gassöfnun. I. Verhoogens í Nyamuragira og Tazieffs
í Nyaragongo í Afríku. Þá hafa margar tilraunir verið gerðar til
gassöfnunar á Stromboli af Tonani, Elskens og Tazieff.
Fram til 1947 höfðu engar tilraunir verið gerðar til gassöfnunar
í eldfjöllum í Atlantshafi, að frátöldum þeim sýnishornum, sem
Bunsen tók við Heklu 1846 .
Eftir Heklugosið 1947—48 voru gerðar nokkrar tilraunir til
gassöfnunar, einkurn eftir að vart varð við útstreymi lofttegunda,
sem söfnuðust fyrir í lautum og bollum eldri hrauna. Sauðfé og
fuglar drukknuðu í þessum gaspollum og þurfti að afgirða nokkra
hættulegustu staðina.
í Öskjugosinu 1961 var gerður út leiðangur til gassöfnunar, en
sá leiðangur komst aldrei lengra en til Akureyrar og snjóaði þar
inni. Sumarið eftir var gerð ferð meðal annars í þeim tilgangi að
ná lofttegundum úr hraunsprungum og gufuaugum. Þau sýnis-
liorn, sem fengust, reyndust að mestu andrúmsloft lítillega mengað
koldioxyði.
Við upphaf Surtseyjargossins 1963 virtust ekki miklar líkur á
því að takast mætti að ná lofttegundum til efnagreininga, en strax
og gosið breyttist úr sprengjugosi yfir í hraungos voru gerðar til-
raunir til að safna lofttegundum úr hrauninu.
Fyrsta tilraunin var gerð i maí 1964. Sá staður, sem var valinn
til gassöfnunar, var um 100 m suðaustur af gígnum. Reynt var að
dæla lofttegundum upp úr hraunsprungu, þar sem sá í glóandi berg-