Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 47
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
193
1. myncl. Hæð gosskýsins yfir Surtsey 1. desember 1963. — Fig 1. Height of top
of the volcanic cloud at Surtsey on December lsl, 1963.
Eldingar.
Fyrstu mánuði gossins bar mikið á eldingum í gosmekkinum, eða
allt þar til öskugosið hætti og hraungos tók við. Eldingablossarnir
blöstu við frá Vestmannaeyjum og þaðan voru teknar af þeim
margar góðar myndir. Fyrir kom að eldingarnar sáust einnig frá
Reykjavík, og hefur þá hæð þeirra verið yfir 3,3 km.
Útvarpstruflanir frá eldingunum voru áberandi í Vestmanna-
eyjum og þeirra gætti einnig í Reykjavík. Skip, sem sigldu nálægt
gosstöðvunum, áttu oft erfitt með að halda uppi loftskeytasam-
bandi. Tilraun var gerð til að nota útvarpstruflanirnar til að telja
eldingarnar bæði frá Reykjavík og frá Vestmannaeyjum án þess
að öruggur árangur fengist. Enginn efi er þó á því, að slíka teljara
má nota til að fylgjast með gangi kröftugra öskugosa, einkum ef
liægt er að koma teljaranum fyrir nálægt gosstaðnnm.
Mánuði el'tir að gosið hófst sigldi ég út til gosstöðvanna með
varðskipinu Óðni. Fyrst í stað var gosið nokkuð slitrótt. Ljósleitir