Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 11

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 11
NÁTTÚRUFR. 121 um í glösin, sem eru nákvæmlega merkt og númeruð, svo að eigi ruglist. Þessi sýnishorn förum við með heim á vinnustofu. Og nú byrjar frjógreiningin. Við tökum svolítið af hverju sýnis- horni og sjóðum það í kalílút eða flússýru, ef sandur er í því, því að flússýran leysir upp sandinn. Við setjum svo dropa af þessum graut á glerplötu, setjum glyserín saman við, til þess að verja þornun, á meðan á frjógreiningunni stendur, setjum þunna glerplötu ofan á, og skoðum svo í smásjá, venjulega með þrjú hundruð til fimm hundruð faldri stækkun. Hér ber margt fyrir auga, hlutar af mosablöðum, rótarhárum, mosa og burknagróum, kísilpörungum o. s. frv., en á milli allra þessara agna sjáum við aðrar sérkennilegar agnir eða hluti með ákveðinni lögun, suma lauflaga, aðra líkasta kringlum, suma þrí- hyrnda, aðra fimmhyrnda o. s. frv. Þessar agnir eru frjókorn og flest frjókorn ýmsra trjátegunda. Og frjógreiningin byggist nú á því, að hægt er í smásjánni að þekkja í sundur frjó mismun- andi trjátegunda. Við teljum nú öll frjókorn, er við sjáum af hverri tegund, þar til við höfum náð ákveðinni tölu, þó ekki færri en hundrað, og reiknum síðan út, hversu mörg prósent eru hverr- ar tegundar. Tökum til dæmis sýnishorn úr neðsta mólaginu. Þar telj- um við 111 trjáfrjó. Þar af tilheyra 50 furu, 38 björk, 8 víði, 3 elri, 1 eik og 11 heslirunna. Hér verða þá 50% furufrjó, 38 barkafrjó o. s. frv. Heslifrjóin eru af ástæðum, sem hér er ei tími til að skýra, eigi reiknuð í hundraðstölunni. Þetta þýðir, að í þann tíð, er vindurinn feykti þessu frjódufti niður í mýrina úr skógunum í kring, voru hlutföllin milli hinna ýmsu trjátegunda í þessum skógum nær hin sömu og milli frjókornanna í „prepa- ratinu“, furan aðal skógatréð, eða um helmingur skógarins, mikið af björk, talsverður slæðingur af víði, og svolítið af hinum trjánum. Við skoðum annað sýnishorn nokkru ofar. Þar teljum við af 100 trjáfrjóum 30 furufrjó, 28 tilheyra björk, 23 elri, 9 eik, 7 linditré og 3 álmi, auk þess finnum við 36 heslifrjó. Hvað hefir gerzt? Jú, tala hinna suðrænni trjáa hefir sýnilega aukizt á kostnað furunnar og birkisins. Veðráttan er hlý, hlýrri en nú á dögum, því ef við tækjum sýnishorn í yfirborði mýranna á þess- um slóðum og frjógreindum, myndum við eigi fá svo mörg pró- sent hinna suðlægari trjáa. Við frjógreinum nú sýnishorn neðst úr ljósa laginu, er ég nefndi áðan. Þar finnum við meðal annars 12 prócent grenifrjó- korn. Undir ljósa laginu leituðum við árangurslaust að slíkum.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.