Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 32
142
NÁTTÚRUFR.
Þverskurður af lössjarðvegi frá Rheinpfalz.
Dýpt frd yfirborði C a o Mg O Ks O Pi Oa M2 Humus C Oa Ha O P H
A. 0—15 cm. 3,93 1,53 0,33 0,14 0,14 0,65 2,68 b i 05° 1,86 7,6
A2 25-35 — 4,09 1,64 0,43 0,12 0,08 0,96 2,57 1,86 7,7
A3 45-50 — 9,79 1,74 0,29 0,11 0,09 1,03 7,16 2,18 7,9
Löss90-100 - 18,38 2,86 0,15 0,09 0,04 0,36 5,38 0,98 7,9
Kornstærð ýmissa erl. lösstegunda í °/0 eftir stærð í m.m.
Staður > 02 0.2-006 0 05 0 02 0.02- 0.002 0.002 >
Löss frá Reinpf. 90 — 100 cm. . Löss frá Heíligenst. b. Wien . Löss frá Hajós i Ungverjal . . Löss frá SV. Grænlandi .... 6,0 1,1 2.4 1.5 22,5 33.3 25.4 48,1 38,6 45,5 45,4 40,9 32,2 10,7 15,6 7,9 9,4 11,0 1,6
(Önnur skifting) > 1 1-0.25 0,25-0,01 -0,005 0,0015 0,0015 >
Löss frá Woronesch Rússl. . . 0,01 0,82 23,85 42,38 8,72 22,35
nr. 11 meS pH 6,54. Mesti mismunur á gildi pH er rúmlega 1 og
innbyrðismismunur sýnishornanna úr Vaglaskógi er vart meiri
en meðal hinna, sem tekin hafa verið á ýmsum stöðum. 4 sýnishorn-
in eru basisk, 9 þeirra svo að segja óvirk (neutral) (frá pH 6,85
til pH 7,15) og 6 eru lítið, eitt súr. Að meðaltali mun íslenzk fok-
jörð vera nálægt því að vera óvirk, því að fleiri rannsóknir hafa
bent í sömu átt.
I 1 mol. kaliumkloridupplausn breytist gildi pH fremur lít-
ið í samanburði við ýmsan erlendan jarðveg. Bendir það á, að
„viðspyrnuafl“ (Pufferwirkung) jarðvegsins sé allmikið eins og
þær tvær „titreringar" sýna, sem gerðar voru á nr. 13 og 16.
Viðspyrnuafl eða viðspyrna er sá máttur nefndur, sem upplausnir
eða efni hafa til þess að hindra að sýrumagnið (aktuel Aziditát)
breytist, þótt sýrubreytandi efni bætist við.
Hverjar geta verið orsakir þess, að jarðvegurinn er næstum
óvirkur, og hvers vegna er viðspyrnan svona mikil? Þessu er
ómögulegt að svara fullnægjandi án frekari rannsókna, en við
leyfum okkur að koma með nokkrar tilgátur. Fyrst verður þó að
taka það fram, að það, sem eðlilega ræður sýrumagni jarðvegs-