Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 42
152 NÁTTÚRUFR. ur, heldur einnig heilsuhæli fyrir dýr. Að hvaða gagni þetta getur komið, ekki sízt þegar um verðmæt dýr er að ræða, eins og t. d. kynbótadýr eða veðhlaupahesta, er öllum auðsætt. Eigendur hafa einnig reynt það, að lyf þau, sem ætluð eru til heilsubóta gigt- veikum dýrum, og allsstaðar er hægt að kaupa nú á dögum, koma að litlu gagni. Vöðvar eða sinar, sem farið er að grafa í, læknast lítt við aðgerð þessara lyfja. Oft vill það reynast þannig, að þó að dýrin komist yfir sjúkdóminn, verða þau stirð í liðamótunum alla æfi og aldrei til þeirra nota, sem þau voru áður, á meðan þau voru heil heilsu. Oft geta hin sjúku dýr verið mikils virði fyrir eigand- Stœrsti sjúklingurinn, sem nú er á heilsuhœlinu í Bad Pistyan, er reiðhest- ur, sem tilheyrir hestamunnafélaginu í Pistyan. Hann er slœmur í fœti. Fóturinn er baðaður i mútulega stórum trédalli. ann, t. d. ef um veðhlaupahesta er að ræða, og tjón það, sem honumt bakast við sjúkdóm þeirra eða fráfall, er þá oft og einatt öldungis ómetanlegt. Víða á jörðinni hefir náttúran skapað heilsulindir, sem bót við mörgum meinum á dýrum og mönnum. Oft verða þá þau dýr, sem lifa frjálsu lífi úti í náttúrunni, til þess að benda mönnunum á lækningagildi slíkra linda. Egiptalands-drottningarnar til forna höfðu tekið eftir því, hversu fallegir og hraustir þeir hestar voru, sem héldu sig á Nílarbökkum, og átu þar meira eða minna af leir og leðju með fæðu sinni. Einnig vakti það athygli þeirra, að hest- ar, sem þar höfðu verið á beit um hríð, urðu heilir heilsu, ef þeir voru sjúkir, þegar þá bar þar að, og feldur þeirra varð gljáandí

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.