Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 52
NÁTTÚRUFR.
162
eggjunum úr hreiðrinu — oftast þegar kollan er ekki við — og-
aldrei nema einu í senn, en gengur að öðru leyti um allt eins og
,,séntelmaður“!
Hvítmáfurinn beitir alveg sömu aðferð og kjóinn á þessu
sviði. En oft er gaman að horfa á máfinn, þegar hann er við ann-
an veiðiskap, t. d. þegar hann er að brjóta kuðunga og skeljar.
Hann flýgur með þær hátt í loft upp og lætur þær síðan detta of-
an á kletta eða hleinar, svo þær brotni og hann eigi hægra með
að komast að innihaldinu. Oft má hann endurtaka tilraunina áð-
ur en hún tekst.
Svartbakurinn er stærstur þessara fugla og mestur fyrir
sér,enda má hann teljast með allra illvígustu og gráðugustu,,rán-
fuglum“. Aðferð hans við eggjaránið er svipuð og kjóansog máfs-
ins, en hann mun tæplega vera eins gráðugur í eggin. En hann
heldur sig þá í þess stað betur að hernaðinum. Björn í Kvískerj-
um segir: „Veiðibjallan étur líka skúminn og unga hans, er hún
sér færi á, en venjulega heldur annað hjónanna fuglinum, með-
an hitt rífur hann í sundur. Sömu aðferð munu máfarnir hafa,.
þegar þeir drepa lömb“.
Það kann að vera, að þetta sé rétt lýsing á aðferð svartbaks-
ins (veiðibjöllunnar), þegar hann drepur skúminn, en aldrei hefi
ég þó séð hann beita slíkri aðferð við fugladrápið.
Svartbakurinn er ákaflega gráðugur í æðarunga. Meðan þeir
eru litlir, tínir hann þá upp af sjónum og gleypir þá heila. Móðirin
reynir að vísu að verja þá eftir megni, en það kemur oftast að
engu haldi. En þegar þeir stækka, beitir hann þeirri aðferð, að^
hann mæðir þá á sundinu. Hann leggur í fyrstu ofan að þeim, svo
að þeir stinga sér, sveimar svo stöðugt yfir þeim og slær þá eða
heggur til þeirra í hvert skipti, sem þeir koma upp. Þannig gerir
hann þá uppgefna. Og þegar svo er komið, tekur hann þá í nefið
og hengir þá eða kæfir; fleytir þeim síðan að landi og matast þar..
Fullorðinn æðarfugl drepur svartbakurinn ekki nema í harðind-
um. Lundinn fær líka stundum að verða fyrir barðinu á honumr
en erfiðlega mun honum oft ganga að ráða niðurlögum hans.
Ég hefi oft horft á svartbakinn að þessari iðju, en aldrei séð-
nema einn ráðast að bráðinni; safnast oft fleiri að og vilja gæða
sér á krásinni.
Svartbakurinn drepur líka unglömb, og má vel vera, að þeir
séu fleiri saman að því. Ég hefi aldrei verið sjónarvottur að þeim
sláturstörfum.
Krían er ekki ,,ránfugl“ og veiðir ekki fugla sér til matar, en