Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 59

Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 59
NÁTTÚRUFR. 169 C. HELSINGJA-ÆTTKVÍSLIN (BRANTA, SCOPOLI). 8. tegund. Margæs, Branta bernicla bernicla (L). (Eftir T. A. Coward: The Birds of the British Isles.) Samnefni: Anas bernicla L, Anser bernicla (L), Anser torquatus (Frisch), Anser brenta Pallas, Bernicla brenta (Pallas), Bernicla torquata (Frisch). (A Norðurlandamálum: Knortegaas, Gaul, Prutgás; ensku: Brent Goose; þýzku: Ringelgans.) Lýsing: Höfuð og háls niður á bringu og herðar sótsvart, ofarlega á hálsinum, sinn hvoru megin, eru tveir hvítir blettir, sem stundum ná nærri saman að framanverðu. Sýnist því oft tilsýnd- ar eins og þessi gæs sé með hvítan hring um hálsinn, ef til vill er nafnið helsingi dregið af þessu. Að aftanverðu ná blettirnir aldrei saman. Á herðum og baki er liturinn dökkgrár með móleitum blæ, því bakþökurnar eru með móleitum jöðrum. Bringan, síðurnar, lærin og kviðurinn framanverður er mógrátt og virðist vera með ljósleitum þverrákum, vegna þess, að fiðrið þar er með ljósgráum jöðrum. Aftari hluti kviðarins er snjóhvítur og stélþökurnar, bæði að ofan og neðan, eru hvítar og jafnlangar stélfjöðrunum, sem þökurnar hylja að mestu og sér því ekki í stélfjaðrirnar nema þær yztu, sitt hvoru megin. Stélfjaðrirnar, 16—18 að tölu, eru svartar. Vængirnir eru mósvartir, flugfjaðrirnar allar svartar, en væng- þökurnar eru með ljósmóleitum jöðrum. Nef og fætur svartir.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.