Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 62

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 62
172 NÁTTÚRUFR. Helsingi, Branta leucopsis (Bechstein). (Eftir T. A. Coward: The Birds of the British Isles.) skörp litaskipti, einkum á bringunni. Frá nefinu er svört rák aftur að augum. Bringan neðanverð og kviðurinn framanverður er mjög ljósgrár, stundum nærri hvítur, en ætíð með daufum, gráleitum þverrákum, síðurnar og lærin ljósgrá, allur aftari hluti búksins að neðanverðu hvítur. Stélþökurnar eru hvítar, en stélfjaðrirnar (14? (Alpheraky)) sjálfar svartar. Neðan á stélinu eru stélþök- urnar allt að helmingi styttri, en að ofanverðu. Á baki, herðum, og á vængjunum eru þökurnar áberandi ljósgráar, með all-breiðri, svartri þverrák út til endanna, en allra yztu jaðrarnir á þeim eru hvítir. Flugfjaðrirnar eru svartar. Að neðanverðu eru vængirnir ljósgráir. Nefið er stutt og fremur hátt, svart á lit.1) Fæturnir svartir. Augun dökkmóleit. Enginn sýnilegur kynferðis munur, en steggurinn er að jafnaði stærri en kvengæsin, og er það algild regla um gæsir yfirleitt. Þessi gæs er öll ljósari yfirlits en aðrar frænkur hennar af þessari ættkvísl og meðal þeirra fegurstu. Vekur hún því jafnan athygli, þar sem hún fer um héruð og er frekar tekið eftir henni en öðrum helsingjum. Vngir helsingjar eru gulleitir í andliti og freknóttir af svört- um fjöðrum, sem eru hér og þar innan um hvíta fiðrið. Litirnir eru yfirleitt óhreinni og litatakmörkin ógleggri. Á baki og herð- um er fiðrið með dökkum, rauð-móleitum jöðrum, er fuglinn allur 1) „Tennur“ í efra skolti ekki færri en 30 (Alpheraky).

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.