Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 70
180
NÁTTÚRUFR.
Þverár, út með Hlíðinni, er vafalaust sú, að farvegur fljótsins
hefir hækkað mikið síðan á landnámsöld, einkum að vestan-
verðu, þar sem þverárnar (Jökulsá og Steinsholtsá) hafa rutt
grjóti og sandi fram á aurana.
Jón Eyþórsson.
Vörðufellsvatnið.
Upp af Skeiðum í Árnessýslu er fell eitt, sem Vörðufell nefn-
ist. Sunnantil á því er allmikið stöðuvatn, sem vafalaust er afar-
gamalt gígvatn. Hafa ýmsar kynjasögur gengið um vatn þetta,
eins og mörg önnur af vötnum þessa lands. En allar munu þær
eiga rót sína að rekja til hjátrúar þeirrar og hugarburðar, sem
eitt sinn gagntók þjóðina svo mjög.
Eigi er mér kunnugt um, að vatn þetta hafi nokkurn tíma
verið mælt, fyrr en nú í októberlok, að eg og Erlendur bróðir
minn tókum okkur til og mældum dýpt þess á fjórum stöðum.
Hafði mér jafnan verið hugleikið að mæla þetta vatn, sökum þess
hversu djúpt það hefir verið álitið af flestum, sem til þekktu.
En eins og oft vill verða, þar sem um hugarburð einn er að ræða,
hefir dýptin á vatni þessu verið ýkt fram úr öllu hófi, og mun
svo vera um mörg önnur fjallavötn hér á landi, sem eigi hafa
mæld verið.
Eins og áður er sagt, mældum við vatnið á fjórum stöðum,
og reyndist okkur dýptin vera ellefu metrar þar sem hún var
mest. Ef til vill er það nokkru dýpra sums staðar, en það mun
þó varla vera mikið.
Helgastöðum, í nóvember 1934.
Eyþór Erlendsson.
Þær voru að átta sig.
Atburð, er stórlega vakti undrun mína, bar fyrir mig fyrri-
hluta dags einn sunnudag í ágústmánuði. Eg var á gönguför hér
suður um hraunin, fyrir sunnan Hafnarfjörð, og var kominn upp
á fell eitt, sem þar er. Norðan við það er vatn, og verpir þar
einstaka veiðibjalla, en utan á fellinu að suðvestan sitja oft og
tíðum nokkur hundruð þeirra, en stundum eru þær niður við