Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 74

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 74
184 NÁTTÚRUFR. Sum hin síðari sumur virðist hafa verið óvenju margt um marsvín hér við land, einkum sumarið 1929 í ísafjarðardjúpi og á Húnaflóa, og jafnvel við Austfirði (út af Kambanesi). Á Patreks- firði varð þeirra vart vorið 1932 og aftur síðast liðið sumar, en náðust í hvorugt skiptið. Mest ber á marsvíninu hér síðsumars og á haustin, samtímis því að smokkfiskurinn er hér í fjörðum. B. Sæm. Rit og bækur. B. Sæmundsson: Zoologiske Meddelelser fra Island, XIV. Vidensk. Medd. etc. Bind. 97, Köbenhavn, 1933—34. Um langa röð ára hefir dr. Bjarni Sæmundsson skrifað vís- indalegar ritgerðir í danska tímaritið „Videnskabelige Meddelelser fra dansk Naturhistorisk Forening i Köbenhavn". Þar hefir hann meðal annars birt tvær langar og merkar ritgjörðir, þótt langt sé nú umliðið, aðra um smáhveljur, en hina um burstaorma í höf- um íslands. Auk þess margar ritgjörðir um fiska, fugla og fleira. Síðastliðið ár kom 16. ritgjörðin, hún er um fuglaheim landsins, og heitir: Nogle ornithologiske Icigttagelser og Oplysninger. Höf- undurinn bætir þar við ýmsum fróðleik um 69 tegundir íslenzkra fugla, og af þeim eru sumar tegundirnar ný-fundnar hér á landi, þeirra hefir áður verið minnst í Náttúrufræðingnum. Bendir höf. á ýmsar breytingar, sem orðið hafa á fuglalífi landsins á síðustu 20 árum. Guðmundar Bárðarsonar, prófessors, minnst: í bók þeirri, sem nefnd er að ofan (Vidensk. Medd. etc., Bd. 97), ritar danski jarðfræðingurinn, dr. V. Nordmann, nokkur minningarorð um Guðmund heitinn Bárðarson, og fylgir góð mynd. Er þar drepið stuttlega á lífsferil hins látna, um leið og tilgreint er starf hans, og ritgerðir þær, sem eftir hann liggja. Höf. endar minningarorðin með því að láta í Ijós, að vísindin eigi G. G. B., Þorvaldi Thorodd- sen og Helga Péturss mest að þakka þekkinguna á jarðfræði íslands. Árbók Ferðafélags íslands er að þessu sinni (1934) helguð Þingeyjarsýslum. Bókina hafa skrifað þeir dr. Þorkell Jóhannes- son og Steindór Steindórsson kennari. Mikil vandvirkni og ná-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.