Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 7

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 115 iliiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiimmiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiii eftir plöntunni. Sé aðalrótin skorin burtu, fær einhver hliðarrót- in sömu stefnu og aðalrótin hafði áður. 2. Ljóshreyfingar. Orsök þeirra er einhliða birta, er veldur því að plantan fer að vaxa til þess að nálgast eða f jarlægjast Ijós- ið eftir ástæðum. Allir hafa séð, hvernig gluggablóm snúa öllum blöðunum út að birtunni; ef plantan er látin standa óhreyfð í nokkra daga, sést þetta mjög greinilega. Ljósið er nauðsynlegt og blaðstilkarnir snúa upp á sig og beygja sig á ýmsan hátt, svo að blöðin viti sem bezt við birtunni. Þetta er líka greinilegt í skógi. í skógarjaðrinum vaxa greinar trjánna allar burtu frá skugga skógarins og út til ljóssins, og inni í skóginum teygja trén laufið upp í birtuna, sem hér kemur mest að ofan, og verða bolhá. Ljós- næmi plantnanna er annars æði misjafnt og skuggaplöntur þola illa mikla birtu og reyna þá að hreyfa sig burt frá ljósinu. Svo er um margar skógarjurtir, t. d. burkna. Hér á landi koma gjárn- ar og hraunholurnar þessum jurtum víða í stað skógar. Ljósnæm- ið er mest hjá sjálfu blaðinu, blöðkunni, en blaðstilkurinn annast hreyfinguna. Áhrifin hljóta því að geta borist frá blöðkunni, sem skynjar Ijósið, og til stilksins. Þegar kartöflur spíra í myrkri, verða spírurnar langar og renglulegar. Þær eru að reyna að teygja sig upp til ljóssins. í birtu þurfa þær ekki að leita ljóssins og spírurnar verða þá grænar og þreklegar. Af ofanskráðu er ljóst, að plönturnar geta hreyft sig og þyngdaraflið og ljósið eru öfl þau, sem mestu ráða um vaxtarlag plantnanna. En margt fleira örvar plönturnar til hreyfinga. 3. Hitabreytingar. Tilraun má gera á þann hátt, að láta fræ spíra í röku sagi í kassa, og sjá þá um að meiri hiti sé í öðrum enda kassans en í hinum. Við lágan hita vaxa ræturnar í áttina til hit- ans, en við mikinn hita burtu frá honum. 4. Hreyfingar af völdum rafmagnsstrauma. Sé rafmagns- straumi hleypt í gegnum vatn, sem jurtarætur vaxa í, þá fara ræt- urnar að hreyfa sig að straumnum, ef hann er sterkur, en burt frá honum, ef hann er veikur. Straum-aðleitnin stafar líklega af skemmdaráhrifum, því að ræturnar deyja fljótlega á eftir. — Skemmdaráhrifa gætir líka, ef rótaroddurinn er látinn verða fyr- ir einhliða áhrifum af silfurnítrati, eða ef komið er við hann var- lega með heitum hlut, t. d. glerstöng. Venjulega reynir jurtin að hreyfa sig burtu frá skemmdavaldinum, en dregst þó stundum að honum. 5. Hreyfingar af völdum streymandi vatns. Sé rennandi vatn 8*

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.