Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 70

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 70
178 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiimmiiiiiiiimiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiimmiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiimiimmmiiiiiiimmtmiiiiimmmiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiliiiiiimii gekk það ekki svo greiðlega. Samt sem áður tókst smám saman að gera tímatalstöflu, er náði aftur til ársins 700 e. Kr., eða álíka langt og öll saga Norðurlanda. Það er auðvelt að gera sér það í hugarlund, hvernig þessi málalok orkuðu á þjóðerniskennd Ameríkumanna. Vér heyrum oft kvartað yfir einhæfingu vísindanna. En þarna í öræfum Ameríku mættust stjörnufræði, grasafræði, veðurfræði og fornfræði, og í sameiningu tókst að skapa af þeim eitt hið e’lzta tímatal, sem vér þekkjum. Hér í Evrópu hafa menn einnig rannsakað árhringa með góðum árangri. Linné sjálfur hafði á ferð sinni til Ölands athug- að árhringa á gömlum trjám. Hann sá hversu þeir voru misþrosk- aðir, og hóf þegar leit að orsökum þess. „Þegar ég tók að hugsa um, hver orsökin kynni að vera, datt mér í hug að harðir vetur gætu valdið þVí, að hringarnir nálguðust meira hver annan......................... Þannig höfum vér í eikarstofninum einskonar árferðisannál, er nær 200 til 300 ár aftur í tímann“. Það voru fyrst eftirmenn Linnés, sem sýndu fram á hið rétta eðli árhringanna, en engu að síður mun hann vera hinn fyrsti vísindamaður, sem reynt hefir að finna samræmið milli árhringa og árferðis. Fáir staðir á Norðurlöndum eiga jafnlanga sögu og eyjan Gotland. Þar finnast leifar af ævafornu mannvirki, sem ka'ilast „Bulverket". Það er stauragirðing, sem liggur úti í næst stærsta stöðuvatni Gotlands. Þegar lítið er 1 vatninu standa sumir staur- arnir upp úr, og úr lofti fær maður séð, að hér er um tröllaukið mannvirki að ræða. Það hefir verið reiknað út, að í sjálfu „Bul- verket“ séu 11000 furustofnar, og í girðingu í kringum það 19000 stólpar. Fornfræðingarnir fundu þar næstum enga muni, sem hægt væri að ákveða aldur þess eftir, en töldu að það væri frá Róm- verjatímanum, eða ef til vill síðan um þjóðflutningana miklu. Þá kom til skjalanna sænsk vísindakona, Ebba Hult de Geer, og tók að rannsaka „Bulverket" með árhringa-aðferðum Douglass. Hún taldi, að samræmi væri milli vaxtar furunnar í Svíþjóð og risafurunnar í Kaliforníu. Þetta er þó ekki enn talið fullsannað, en niðurstöður þær, er samanburður gefur, eru mjög sennilegar. Eftir því ætti „Bulverket“ að vera reist í kringum 450 e. Kr. Og annað leiddu þessar rannsóknir í ljós. Með því að athuga þá stólpa, sem settir höfðu verið inn til viðgerða eftir því, sem íímar liðu, varð sýnt, að „Bulverket hafði verið í notkun í full 150 ár. En um þær mundir vitum vér frá sögunni, að Svíar herjuðu á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.