Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 36
144 NÁTTÚRUFRÆÐÍNGURINN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiimitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliiliiliiliiliiliilii
Árangur ísl. fuglamerldnga, XIII.
Endurheimtur 1936 (frh.).
A Innanlands.
7) Hrafn (Corvus corax tibetanus, Hodgson). Merktur (3/93)
hjá Ásum í Eystri Hrepp, Árnessýslu, þ. 18. júní 1936. Skot-
inn hjá Gelti í Grímsnesi í miðjum nóvember 1936. Þetta var
ungi í hreiðri, þegar hann var merktur.
8) Lómur (Colyrribus stellatus, Pontoppidan). Merktur (3/705)
hjá Gröf á Rauðasandi, þ. 16. ágúst 1936. Skotinn á Grund-
arfirði þ. 20. janúar 1937. (Ungi).
B. Erlendis.
10) Grágæs (Anser anser (L)), juv. Merkt (2/180) þ. 12. júlí
1936, hjá Hvammi á Landi, Rangárvallasýslu. Tekin innan um
heimagæsir á Westray í Orkneyjum s. 1. haust, að líkindum
í nóvember. Dvaldi hún þar enn, þ. 8. apríl s. 1., er síðast frétt-
ist til hennar. Var skipt um merki á henni, og ber hún nú
merkið: Witherby London 112700.
11) Skúfönd (Nyroca fuligula (L)), ? ad. Merkt (4/649), á
hreiðri hjá Grímsstöðum við Mývatn, þ. 7. júlí 1935. Skotin
þ. 25. jan. 1937, hjá Lisnaskea, Co. Fermanagh á Norður-
Irlandi.
Endurheimtur 1937.
A. Innanlands.
1) Langvía (Uria aalge aalge, Pontoppidan). Merkt (3/935),
fullorðin, í Vestmannaeyjum, þ. 5. apríl 1937. Fannst dauð
sama staðar skömmu síðar. Fuglinn hafði verið dasaður og
meiddur, þegar hann náðist, og var reynt að lækna hann, en
það hefir ekki tekizt.
2) Lómur (Colymbus stellatus, Pontoppidan). Ungi, merktur
(3/701), hjá Stakkadal á Rauðasandi, þ. 12. júlí 1936. Skot-
inn á Hvalfirði þ. 1. júní 1937.
3) Lómur (Colymbus stellatus, Pontoppidan). Merktur (3/704),
veiddist í hrognkelsanet frá Dufansdal í Arnarfirði, þ. 16.
maí 1937. Fugl þessi er ekki á þeim fuglamerkjaskrám, sem