Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 145
llllllllllllllililllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliiiil
eg hefi í höndum, þegar þetta er skrifað (22/10-37), en merk-
ið er frá hr. Torfa Ólafssyni í Stakkadal á Rauðasandi, og
hefir hann að líkindum merkt fuglinn sumarið 1936.
B. Erlendis.
1) Tjaldur (Haemato'pus ostralegus, (L)), juv. Merktur (4/992),
þ. 14. júní 1937, hjá Hvammi á Landi, í Rangárvallasýslu.
Fannst sjórekinn hjá Musselburgh á Skotlandi um miðjan
september 1937.
2) Duggönd (Nyroca marila marila (L)). Merkt (4/663), hjá
Reykjahlíð við Mývatn, þ. 3. júlí 1935. Fannst dauð við Lough
Derg (River Shannon) á írlandi snemma í maí 1937.
3) Skúfönd (Nyroca fuligula (L)), $? ad. Merkt (4/628), á
hreiðri, hjá Grímsstöðum við Mývatn þ. 10. júlí 1935. Skotin
þ. 16. okt. 1937 við sunnanvert Lough Neagh, á Norður-
Irlandi.
4) Skúfönd (Nyroca fuligula (L)). Merkt (4/598) á Gríms-
stöðum við Mývatn, þann 29. júní 1935. Drapst á símavír
skammt frá Straumnesi í Orkneyjum, þann 17. nóv. 1937.
Finnandinn telur, að þetta hafi verið duggönd (N. marila),
en samkvæmt merkjaskrám hr. Jóhannesar Sigfinnssonar á
Grímsstöðum er þetta skúfönd, og þar eð nafngreining hans
á fuglum hefir ekki brugðist til þessa, held eg mér við hana
þar til annað reynist sannara.
5) Toppönd (Mergus serrator. (L)). Merkt (3/371) á Gríms-
stöðum við Mývatn, þann 10. september 1933. Skotin við ána
Tay á Skotlandi, þann 20. janúar 1936. Tilkynning um þenn-
an fugl barst mér fyrst í hendur þann 19. nóvember 1937.
6) Grágæs (Anser anser (L)). Merkt hjá Hvammi á Landi í
Rangárvallasýslu, þann 8. júlí 1937. Skotin við Wexford
Harbour á Irlandi, þann 27. Nóvember 1937. Þetta var ungi.
7) Grágæs (Anser anser (L)), juv. Ungi, merktur (2/330) hjá
Hvammi á Landi, þann 14. september 1937. Skotinn snemma
í desember 1937, hjá Invergowrie við ána Tay, skammt frá
Dundee á Skotlandi.
8) Tjaldur (Hæmatopus ostralegus (L)), juv. Ungi, merktur
(4/996), hjá Hvammi á Landi, þann 19. júní 1937. Kom fram
(skotinn?) hjá Heysham við Morecambe Bay í Norður-Lan-
caster á Englandi, um miðjan nóvember síðast liðinn.
10