Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 20

Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 20
128 NÁTTÚRUFKÆÐINGURINN II111111111111111111IIIIIIIIIlllllllllllIIIIIIIIIIIIIIII1111llllIII1111IIIIIllllllllIIIIllllllIIIIIIIIIllilIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII111111111111IIIIII llillllllllll sem silki fyrir augu mannanna, sem eru á yfirborði jarðarinnar. Þar hafa bláu geislarnir utan úr geimnum að mestu leyti tapað stefnu þeirri, sem þeir höfðu upprunalega, alveg eins og litlu bylgjurnar við bryggjuna. Þess vegna koma þeir inn í augað nærri því hvert sem litið er, þess vegna sýnist himininn blár. Rauðu geislarnir hafa aftur haldið stefnu sinni að mestu; þá sjáum við því bezt, ef við lítum í áttina, sem þeir komu frá, til sólarinnar, en þess vegna sýnist okkur sólin rauð. Áhrif þau, sem bylgjur sólarljóssins verða fyrir í gufuhvolf- inu, verða til þess að fegra heiminn fyrir okkur. Vegna þeirra sýnist himininn blár, sólin rauð; þeim getum við þakkað litskrúð sólarupprásar og sólseturs, ljóma fjarlægra fjallatoppa, hina undrafullu litablöndu rökkursins, grænleitu litadrögin á vetrar- himninum, og hina blá-fjólubláu dýrð í austri, þegar lýsir af degi. Þegar við komum út fyrir gufuhvolfið, hverfa áhrif þess á þá geisla, sem berast augum vorum utan úr geimnum. Við komum inn í heim, sem greinist skarpt í ljós og myrkur. í fyrsta skipti á æfinni sjáum við sólina eins og hún er í raun og veru, sterka, blá- leita ljóskúlu. Við sjáum sólina ganga til viðar á kolsvörtum himni, því að nú er ekki lengur gufuhvolfið á vegi geislanna til þess að dreifa þeim til allra hliða. Það er engu líkara en að nýi heimurinn, sem ferðavélin er að bera okkur til, sé einhver óveru- legur, dularfullur draugaheimur. I nánd við tunglið. Heppilegast fyrir okkur hefði verið að fara af stað frá jörðinni þegar tungl var nýtt, því einmitt þá förum við fram hjá tunglinu á leiðinni til sólarinnar. Hugsum okkur þá, að þannig sé hagað ferð okkar. Bak við okkur er jörðin, myrk og ógreinileg, því við sjáum hana gegnum ryk, regn, loft, snjó, ský og þoku, en á hinn bóginn er tunglið einkar greinilegt. Ástæð- an til þess er sú, að þar er ekkert gufuhvolf, og því engin þoka, engin ský og ekkert regn, sem hylur yfirborð þess sjónum vorum. Þótt við séum langt í burtu, getum við séð, að ekkert vatn er á tunglinu. Væru þar höf, vötn og ár, myndum við sjá vatnið glitra í sólarbirtunni, jafn sterk og hún er, en þess eru engin merki. Þegar við komum ennþá nær, og beitum sjónaukanum, sjáum við einnig greinilega, að á tunglinu er ekkert hús, engin borg, eng- inn gróður, ekkert líf; við horfum á dauðan heim. Fyrir rúmri öld fann dagblað í New York upp á því, að birta hverja greinina eftir aðra um tunglið, eins og það átti að vera samkvæmt nýjustu athugunum, sem þá höfðu verið gerðar. Allt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.